Framsýn hefur ákveðið að styrkja kaup á nýjum öflugum björgunarbát til Húsavíkur um kr. 200.000,- en söfnun fyrir bátnum stendur yfir um þessar mundir. Björgunarsveitin Garðar hefur fjárfest í opnum harðbotna slöngubát af gerðinni Atlantic 75 af bresku sjóbjörgunarfélagi. Áætlað er að báturinn kosti tæpar 10 milljónir. Read more „Styrkir kaup á nýjum björgunarbát“
Íbúðakaup í skoðun
Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar hefur ákveðið að leggja til við félagsfund sem haldinn verður næsta þriðjudag að íbúðir félagsins í Reykjavík verði seldar og nýjar keyptar í staðinn enda núverandi íbúðir allt of litlar. Félagið á fjórar íbúðir, reyndar eina með Þingiðn. Read more „Íbúðakaup í skoðun“
Framsýn boðar til félagsfundar um kjara- og íbúðakaup
Félagsfundur verður haldinn í Framsýn- stéttarfélagi þriðjudaginn 17. janúar kl. 17:15 í fundarsal félagsins. Málefni fundarins eru kjaramál og kaup á nýjum íbúðum í Reykjavík fyrir félagsmenn. Í næstu viku mun ráðast hvort samningunum verður sagt upp eða ekki. Þá eru uppi hugmyndir um að skipta út núverandi íbúðum Framsýnar í Reykjavík fyrir nýjar. Sjá dagskrá fundarins: Read more „Framsýn boðar til félagsfundar um kjara- og íbúðakaup“
Aðalsteinn von Rauðatorg svarar Helga de Grafarbakka
Aðalsteinn Árni Torgari svarar Helga Helgasyni miðbæingi í síðasta Skarpi er varðar samskipti þessara bæjarhluta hér á árum áður. Hér má lesa greinina sem vakið hefur athygli: Read more „Aðalsteinn von Rauðatorg svarar Helga de Grafarbakka“
Hörð gagnrýni á stjórnvöld
Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar sem jafnframt er samninganefnd félagsins hóf fund í dag kl. 17:15 og var fundinum að ljúka rétt í þessu. Aðalefni fundarins voru kjaramál. Hörð gagnrýni kom fram á fundinum með framkomu stjórnvalda í garð verkafólks. Óþolandi væri að ríkistjórn Íslands stæði ekki við gefin loforð um velferð, jöfnuð og réttlæti. Read more „Hörð gagnrýni á stjórnvöld“
Formaður Framsýnar í útvarpsviðtali
Í morgunsárið var formaður Framsýnar, Aðalsteinn Á. Baldursson, í viðtali á Bylgjunni um kjaramál. Þeir sem vilja fræðast um skoðanir hans á stöðunni er bent á að hlusta á viðtalið hér: viðtal við Aðalstein. Read more „Formaður Framsýnar í útvarpsviðtali“
Þingiðn fer yfir stöðu kjarasamninga
Verður kjarasamningum sagt upp í næstu viku?
Fulltrúar Framsýnar, Verkalýðsfélags Akraness og Verkalýðsfélags Þórshafnar hafa ákveðið að funda í Reykjavík síðdegis miðvikudaginn 18. janúar og fara yfir forsendur kjarasamninga og uppsagnarákvæði samningsins. Read more „Verður kjarasamningum sagt upp í næstu viku?“
Framsýn fjallar um stöðu kjarasamninga
Boðað hefur verið til fundar í stjórn og trúnaðarmannaráði Framsýnar miðvikudaginn 11. janúar kl. 17:15 í fundarsal félagsins. Mörg mál eru á dagskrá fundarins en aðalmál fundarins verða kjaramál og hvort segja eigi kjarasamningum upp í janúar eins og heimilt er hafi samningsforsendur ekki staðist. Sjá dagskrá: Read more „Framsýn fjallar um stöðu kjarasamninga“
Þungur undirtónn á formannafundi ASÍ
ASÍ boðaði til formannafundar í gær í Reykjavík til að ræða forsendur kjarasamninga en fyrri endurskoðun kjarasamninganna á að vera lokið 20. janúar. Read more „Þungur undirtónn á formannafundi ASÍ“
ASÍ boðar til formannafundar
Alþýðusamband Íslands hefur boðað til formannafundar næsta fimmtudag. Á fundinum verður farið yfir forsendur kjarasamninga frá því í vor, mat lagt á stöðu þeirra og umræður. Read more „ASÍ boðar til formannafundar“
Betri tímar framundan
Í samtali við heimasíðu stéttarfélaganna segir formaður Framsýnar að of margir hafi átt erfitt fyrir jólin. Það hafi því verið afar ánægjulegt að finna fyrir þeim mikla hlýhug sem mörg fyrirtæki, félagssamtök og einstaklingar hafi sýnt fyrir jólin með því að leggja sitt að mörgum til að sem flestum liði sem best yfir jólahátíðina. Read more „Betri tímar framundan“
Nýr starfsmaður til Vinnumálastofnunar
Í morgun byrjaði Jóhanna Björnsdóttir hjá Vinnumálastofnun en stofnunin er með skrifstofu í húsnæði stéttarfélaganna á Húsavík. Við það tækifæri afhenti forstöðumaður stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum Jóhönnu lyklavöldin að skrifstofunni. Jóhanna tekur við af Hilmari Val Gunnarssyni sem ráðinn hefur verið til Þekkingarnets Þingeyinga. Jóhanna verður í 40% starfi og verður opið frá kl. 11:00 til 14:00 alla virka daga. Read more „Nýr starfsmaður til Vinnumálastofnunar“
Fjölmennum á áramótadansleik!!
Það verður rosalegt stuð á Fosshótel Húsavík þegar stórsveitin SOS spilar undir dansi á nýjársnótt. Dansleikurinn er í boði hljómsveitarinnar, fyrirtækja og félagasamtaka á svæðinu. Þar kemur Framsýn sterkt inn og leggur sitt að mörkum svo hægt sé að bjóða landsmönnum öllum frítt á dansleikinn. Koma svo!!
Samþykkt að óska eftir viðræðum við landhelgisgæsluna
Miklar umræður urðu um málefni sjómanna og forystu verkalýðshreyfingarinnar á aðalfundi Sjómannadeildar Framsýnar í gær. Komið var m.a. inn á lífeyrissjóðsmál, kjaramál, verðmyndun á afla, mönnun á ísfisktogurum, fiskveiðistjórnunarkerfið og framlagðar tillögur LÍÚ er snúa að endurskoðun kjarasamninga. Read more „Samþykkt að óska eftir viðræðum við landhelgisgæsluna“
Aðalfundur sjómanna vill breytingar
Aðalfundur Sjómannadeildar Framsýnar fór fram í dag og var mæting á fundinn góð. Fundurinn stóð yfir í fjóra tíma. Góðar umræður urðu um málefni sjómanna og skýrslu stjórnar. Gagnrýni kom fram á forystu samtaka sjómanna og ASÍ. Samþykkt var að álykta um kjaramál og öryggisfræðslumál sjómanna. Stjórnin var endurkjörin og verður Jakob Hjaltalín áfram formaður deildarinnar. Read more „Aðalfundur sjómanna vill breytingar“
Jólakveðja
Lokað á morgun og 27. desember
Aðalfundur sjómannadeildar nálgast
Aðalfundur Sjómannadeildar Framsýnar verður haldinn fimmtudaginn 29. desember kl. 16:00 í fundarsal félagsins. Á fundinum verður farið yfir venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál. Skorað er á sjómenn innan Framsýnar að fjölmenna á fundinn meðan húsrúm leyfir. Að sjálfsögðu verður boðið upp á veglegar veitingar í boði Sjómannadeildarinnar.
Jólin nálgast
Það er alltaf mikið um heimsóknir félagsmanna og gesta á Skrifstofu stéttarfélaganna. Stefán formaður Starfsmannafélags Húsavíkur kom við í morgun til að ganga frá nokkrum málum fyrir jólin. Fleiri góðir gestir hafa verið á ferðinni og litið við. Read more „Jólin nálgast“