Garðarsbraut 26
640 Húsavík
Sími: 464-6600
Fax: 464-6601

Opnunartímar

Skrifstofa stéttarfélaganna er opin alla virka daga kl. 08:00-16:00. Opið er í hádeginu.

Símar og fax

Aðalnúmer: 464-6600
Fax: 464-6601

Bein númer:
Aðalsteinn Árni Baldursson: 464-6604
Ágúst S. Óskarsson – VIRK: 464-6608
Linda Margrét Baldursdóttir: 464-6603
Jónína Hermannsdóttir: 464-6605
Huld Aðalbjarnardóttir: 464-6602

Félags- og fundaraðstaða

Að Garðarsbraut 26 er félags- og fundaraðstaða félaganna. Þar hafa félagsmenn aðgang að netttengdri tölvu.

Þjónusta við félagsmenn

Framsýn, stéttarfélag, Starfsmannafélag Húsavíkur, Þingiðn og Verkalýðsfélag Þórshafnar eiga aðild að Skrifstofu stéttarfélaganna á Húsavík.
Skrifstofa stéttarfélaganna annast alla þjónustu fyrir félagsmenn, svo sem upplýsingagjöf og aðstoð vegna kaup og kjaramála, upplýsingar um réttindi vegna veikinda og slysa, útleigu orlofsíbúða og orlofshúsa. Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir upplýsingum, aðstoð og ráðgjöf vegna alls sem tengist þátttöku á vinnumarkaði.

Rekstur, bókhald og innheimta

Skrifstofa stéttarfélaganna annast rekstur og bókhald stéttarfélaganna í samráði við stjórnir þeirra.

Félagsgjöld

Skrifstofa stéttarfélaganna annast innheimtu á félagsgjöldum og skyldum gjöldum. Félagsgjald er 1% af heildarlaunum og skila launagreiðendur því ásamt skyldum gjöldum (sjúkrasjóðs-, orlofssjóðs- og starfsmenntasjóðsgjöldum) til félaganna. Bankareikningur til greiðslu þessara gjalda er í Landsbanka Íslands hf. á Húsavík:

Framsýn: 192-26-101 kt. 680269-7349

Þingiðn: 192-26-457 kt. 490272-4109