Framsýn stéttarfélag stendur fyrir upplýsingafundi um málefni sjóðfélaga innan Lsj. Stapa mánudaginn 2. desember kl. 17:00 í fundarsal Framsýnar.
Dagskrá.
- Réttindakerfi Stapa
- Lykiltölur úr rekstri og framvinda fjárfestingarstefnu
- Aukið hlutverk fulltrúaráðs
Fundurinn er opinn öllum sjóðfélögum Lsj. Stapa. Starfsmenn sjóðsins verða frummælendur á fundinum og svara fyrirspurnum fundarmanna. Mikilvægt er að sjóðfélagar fjölmenni á fundinn og kynni sér málefni sjóðsins og/eða komi ábendingum á framfæri við stjórnendur sjóðsins varðandi s.s. réttindakerfið. Það gerist ekkert með því að sitja heima.
Framsýn- stéttarfélag