Veðrið hér norðanlands hefur verið afar leiðinlegt síðustu vikurnar ekki síst fyrir fugla, búfénað og blessað mannfólkið. Einn smáfugl kunni ráð við því þar sem hann bjó sér til hreiður í fundarsal stéttarfélaganna. Þar er hann búinn að verpa þremur eggjum og er ánægður með tilveruna í góðu skjóli.