Stjórn og trúnaðarráð Framsýnar koma saman til fundar á morgun, þriðjudag 9. apríl kl. 17:00 í fundarsal félagsins. Trúnaðarmönnum og Framsýn-ung er einnig boðið að sitja fundinn enda verða kjaramál fyrirferðamikil á fundinum. Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
Dagskrá:
- Fundargerð síðasta fundar
- Inntaka nýrra félaga
- Þjónustukönnun HA á starfi Framsýnar
- Miðjan: Nýr trúnaðarmaður
- Kjarasamningar SA og Framsýnar/LÍV
- Kynning á kjarasamningum
- Félagsfundir um kjarasamninginn
- Vinnustaðaheimsóknir
- Atkvæðagreiðsla
- Kjörstjórn
- Staðan á sérkjarasamningi PCC
- Erindi frá Atvinnuveganefnd Alþingis
- Aðalfundur Sparisjóðs S-Þingeyinga
- Gjaldþrot WOW air
- Aðalfundur Orlofsbyggðarinnar á Illugastöðum
- Aðalfundur Húsfélagsins í Asparfelli
- Aðalfundur Húsfélagsins í Þorrasölum
- Erindi frá Stúlknakór Húsavíkur
- Hátíðarhöldin 1. maí
- Önnur mál