![SAMSUNG DIGITAL CAMERA](http://www.framsyn.is/wp-content/uploads/2014/12/S73F8361-150x150.jpg)
Hið árlega og vinsæla jólakaffi stéttarfélaganna verður í fundarsal stéttarfélaganna laugardaginn 13. desember. Opið verður frá kl. 14:00 til 18:00. Boðið verður upp á kaffi og heimsins bestu tertu frá Heimabakaríi.
Jafnframt verður boðið upp á tónlistaratriði og hver veit nema jólasveinarnir komi í heimsókn. Að sjálfsögðu eru allir velkomnir í jólakaffið.
![SAMSUNG DIGITAL CAMERA](http://www.framsyn.is/wp-content/uploads/2014/12/S73F8361-1024x768.jpg)
Það hefur verið vinsælt að líta við á Skrifstofu stéttarfélaganna fyrir jólin þegar félögin hafa verið með opið hús og boðið upp á veitingar, söng og góða tónlist. Komið hafa á bilinu 300 til 400 gestir.