Yfirlýsing- Framsýn harmar nýgerðan kjarasamning

Yfirlýsing vegna fyrirliggjandi kjarasamninga aðila vinnumarkaðarins sem undirritaðir voru 21. desember 2013. 

Framsýn, stéttarfélag Þingeyinga harmar nýgerðan  kjarasamning Samtaka atvinnulífsins og aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands. Verði kjarasamningurinn samþykktur mun hann auka enn frekar á misskiptinguna í þjóðfélaginu. 

  • Full ástæða er til að fordæma ríkistjórn Íslands fyrir að sniðganga íslenskt verkafólk með því lækka ekki skatta á láglaunafólki. Það gerist á sama tíma og hátekjufólki  eru færðar skattalækkanir á silfurfati samkvæmt ákvörðun Alþingis í gær. Þá vekur þáttur Alþýðusambands Íslands töluverða athygli en sambandið taldi ekki ástæðu til að standa að fullu við bakið á láglaunafólki sem krafðist þess að persónuafslátturinn yrði hækkaður til jafns við aðra.
  • Þá er það með öllu óásættanlegt að verkafólk á töxtum Starfsgreinasambands Íslands skuli í krónum talið fá mun lægri launahækkanir en aðrir hópar launafólks þrátt fyrir að svigrúm sé til staðar í ákveðnum atvinnugreinum s.s. sjávarútvegi. Dæmi eru um að hátekjumenn í krónum talið fái margfaldar hækkanir verkafólks út úr samningnum.
  • Forystumenn ASÍ og SA kalla þennan gjörning samning í þágu láglaunafólks, jafnvel tímamótasamning. Metnaður þeirra fyrir kjörum verkafólks sem búið hefur við kjör innan við kr. 200 þúsund á mánuði er ekki merkilegri en þetta sem er umhugsunarefni. 

Framsýn, stéttarfélag stendur heilshugar við bakið á formanni félagsins sem neitaði að skrifa undir kjarasamninginn. 

Með kveðju
Fh. Framsýnar stéttarfélags
Kristbjörg Sigurðardóttir varaformaður