Í gær var haldinn félagsfundur í fundarsal stéttarfélaganna á Húsavík um nýgerðan kjarasamning Framsýnar við Samtök atvinnulífsins. Fundurinn var einn af mörgum í fundaherferð félagsins um kjarasamninginn og innihald hans. Á annað hundrað manns hafa mætt á félags- og vinnustaðafundi um samninginn sem haldnir hafa verið víða um félagssvæðið. Auk kynninga á fundunum hefur félagsmönnum boðist að kjósa um kjarasamninginn að loknum fundum.
Skiptar skoðanir hafa verið um samninginn og orðið miklar umræður á fundunum um ágæti hans. Fyrr í gær var kynningarfundur í Mývatnssveit og lýkur fundaherferðinni í kvöld með kynningu á Breiðumýri klukkan 20:00. Skorað er á félagsmenn í Framsýn til að mæta á fundinn til að kynna sér kjarasamninginn og kjósa um hann. Einnig er hægt að kjósa á skrifstofu félagsins á Húsavík.
Aðalsteinn Á. Baldursson formaður Framsýnar fór yfir efni kjarasamningsins og svaraði spurningum fundarmanna um samninginn.
Fundarmenn spurðu ítarlega um samninginn og urðu á köflum fjörugar umræður á fundinum.