Líf og fjör í leikskólanum í Mývatnssveit

Það var allt á fullu í leikskólanum í Reykjahlíð þegar formaður Framsýnar var þar á ferð. Reyndar voru sum yngri börnin sofandi meðan þau eldri léku sér með starfsmönnum leikskólans. Sjá myndir af starfsmönnum og börnum:  Fallegur hópur barna ásamt starfsmönnum.Sum börnin fengu sér lúr eftir hádegið. Lovísa gætir þeirra vel.

Skrifstofa Skútustaðahrepps er í sama húsnæði og leikskólinn. Gísli Sigurðsson starfsmaður hreppsins er hér við störf.