Þorrasalir 1-3, Kópavogi

Íbúðirnar eru með tvö svefnherbergi (rúm fyrir 4 + 2 aukadýnur + ferðabarnarúm). Í íbúðunum eru eldhús með öllu því helsta, þ.e. eldavélum, örbylgjuofnum og ískápum með frysti. Þá er leirtau í hverri íbúð fyrir a.m.k. sex manns. Baðherbergin eru með baðkari og sturtu í baðkarinu. Þvottavél er svo í öllum íbúðum og þurrkari er í íbúð nr. 201. Íbúðirnar eru nr. 102, 202, 204, 302  (um 80 m2 að stærð) og svo nr. 201 sem er örlítið rýmri íbúð eða um 100 m2 að stærð og getur hentað stærri fjölskyldum betur.

NÁNARI UPPLÝSINGAR LAUS TÍMABIL

Asparfell 8, Reykjavík

Í Breiðholtinu er boðið upp á íbúð á 1. hæð í fjölbýlishúsi. Í íbúðinni er 1 svefnherbergi með hjónarúmi, tvíbreiður svefnsófi er í stofu og tvær aukadýnur. Í Asparfellinu eru stutt í þjónustu, t.d. er fjöldi verslana rétt við íbúðina.