Þann 9. júní skrifaði Sjómannasamband Íslands fh. Sjómannadeildar Framsýnar undir samning við LÍÚ um hækkun kauptryggingar og kaupliða um 4,25% frá 1. júní 2011. Ekki er um að ræða heildarkjarasamning heldur nær samningurinn bara til hækkunar á kauptryggingu og kaupliðum samningsins frá og með 1. júní 2011. Sjá frekar samninginn: Read more „Samningur við LÍÚ um hækkun kauptryggingar og kaupliða.“
Lausar vikur í orlofshúsum!
Vegna forfalla eru nokkrar vikur lausar í orlofshúsum stéttarfélaganna í sumar. Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Skrifstofu stéttarfélaganna vilji þeir nota tækifærið og komast í orlofshús í sumar. Sjá vikurnar sem eru í boði. Read more „Lausar vikur í orlofshúsum!“
Orðlausir yfir furðulegum starfslokasamningi
Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar samþykkti í dag að senda frá sér ályktun er varðar ákvörðun Framkvæmdastjórnar Starfsgreinasambands Íslands um að ganga frá starfslokasamningi við fyrrverandi framkvæmdastjóra sambandsins. Til viðbótar hafa ekki fengist upplýsingar um hvað samningurinn mun kosta sambandið þrátt fyrir fyrirspurnir þar um. Read more „Orðlausir yfir furðulegum starfslokasamningi“
Samningaviðræður ganga hægt
Fulltrúar Framsýnar funduðu með Landssambandi smábátaeigenda á mánudaginn vegna kjarasamnings félagsins og sambandsins um ákvæðisvinnu við línu og net. Fulltrúar Starfsgreinasambandsins tóku einnig þátt í fundinum en fulltrúar þeirra munu vinna mjög náið með fulltrúum Framsýnar enda um sameiginlegt hagsmunamál að ræða. Samningsaðilar samþykktu að funda næst þann 16. júní. Read more „Samningaviðræður ganga hægt“
Lokað vegna jarðarfarar
Jóhanna ráðin í sumarafleysingar
Jóhanna Björnsdóttir hefur verið ráðin í sumarafleysingar á Skrifstofu stéttarfélaganna. Jóhanna hóf störf síðasta föstudag. Hún starfaði áður hjá Heilbrigðisstofnun Þingeyinga sem launafulltrúi og þar áður sem skólaritari Framhaldsskólans á Húsavík. Jóhanna hefur því víðtæka reynslu af skrifstofustörfum. Stéttarfélögin bjóða hana velkomna til starfa.
Sjómenn heiðraðir á Húsavík
Í dag ætlum við að heiðra tvo heiðursmenn sem markað hafa djúp spor í okkar samfélag með dugnaði og eljusemi. Það eru þeir Óskar Karlsson og Kristbjörn Þór Árnason. Þetta sagði Aðalsteinn Á. Baldursson formaður Framsýnar- stéttarfélags þegar hann tilkynnti í dag hverja Sjómannadeild félagsins hefði ákveðið að heiðra í ár fyrir framúrskarandi sjómennsku. Read more „Sjómenn heiðraðir á Húsavík“
Ríkissáttasemjari svarar kallinu
Síðasta fimmtudag vísaði Framsýn kjaradeilu félagsins við Samninganefnd sveitarfélaga til Ríkissáttasemjara þar sem þolinmæði félagsins var á þrotum. Ríkissáttasemjari var snöggur að svara kallinu því hann hefur boðað til samningafundur í Karphúsinu næst þriðjudag kl. 11:00. Read more „Ríkissáttasemjari svarar kallinu“
Bústaðurinn eins og nýr
Framsýn hefur látið gera nokkrar lagfæringar á bústað félagsins í Dranghólaskógi í Öxarfirði. Undanfarna daga hafa iðnaðarmenn unnið að því að laga bústaðinn. Búið er að mála hann að utan og laga aðgengi að honum. Auk þess er búið að setja upp rólu fyrir ungu kynslóðina. Read more „Bústaðurinn eins og nýr“
Sumarkaffi og spjall við formann Framsýnar
Framsýn stóð fyrir sumarkaffi á Raufarhöfn í gær á Kaffi Ljósfangi. Um 130 gestir komu og þáðu veitingar auk þess að spjalla við formann félagsins, Aðalsteinn Á. Baldursson, sem var á staðnum. Nokkrar félagskonur og vinkonur á Raufarhöfn sáu um kaffið og Heimabakarí á Húsavík lagði til tertuna. Read more „Sumarkaffi og spjall við formann Framsýnar“
Skoða álverið í dag
Um tuttugu félagsmenn Þingiðnar fóru í morgun frá Húsavík til Reyðarfjarðar til að skoða álver Alcoa á Reyðarfirði í góðu veðri. Ljóst er að félagsmenn Þingiðnar binda miklar vonir við að Alcoa reisi svipað álver á Húsavík á næstu árum. Read more „Skoða álverið í dag“
Reiði á fundi stjórnar- og trúnaðarmannaráðs Framsýnar
Það er ekki á hverjum degi sem óskir koma fram frá fulltrúum í stjórn eða trúnaðarmannaráði Framsýnar að boðað sé til sérstakra funda umfram reglulega fundi sem haldnir eru einu sinni í hverjum mánuði. Hins vegar bar svo við í síðustu viku eftir samþykkt Framkvæmdastjórnar Starfsgreinasambands Íslands að gera starfslokasamning við framkvæmdastjóra sambandsins að fólki í stjórn og trúnaðarmannaráði var gróflega misboðið. Read more „Reiði á fundi stjórnar- og trúnaðarmannaráðs Framsýnar“
Vísa deilunni til Ríkissáttasemjara
Samninganefnd Framsýnar, stéttarfélags, samþykkti á fundi sínum í gær að vísa kjaradeilu félagsins við sveitarfélögin í Þingeyjarsýslum til Ríkissáttasemjara, þar sem lítið hefur þokast í viðræðum og þolinmæði félagsins því á þrotum. Þess verður jafnframt krafist að Ríkissáttasemjari boði þegar til fundar í kjaradeilunni. Read more „Vísa deilunni til Ríkissáttasemjara“
Framsýn gengur frá kjarasamningi við ríkið
Samninganefnd Starfsgreinasambandsins fyrir hönd Framsýnar og annarra aðildarfélaga sambandsins hefur gengið frá kjarasamningi við fjármálaráðherra fyrir hönd ríkisjóðs. Samninganefndin er mjög sátt með að hafa náð að tryggja fólki þær launahækkanir sem samið var um á almenna vinnumarkaðnum. Read more „Framsýn gengur frá kjarasamningi við ríkið“
Leikskólabörn á Húsavík fagna sumrinu
Það lifnar yfir öllu um leið og veðrið lagast eftir hálf leiðinlega tíð. Börn úr Leikskólanum Grænuvöllum notuðu góða veðrið í gær og fóru í heimsókn í fjárhús hjá frístundabónda á Húsavík. Þar skoðuðu þau hænur, ær og lömb auk þess að borða nestið sitt. Þau höfðu mjög gaman af ferðinni og kvöddu með bros á vör eftir velheppnaða skoðunarferð. Sjá myndir: Read more „Leikskólabörn á Húsavík fagna sumrinu“
Skrifað undir í næstu viku
Undir kvöld í gær var handsalaður samningur á milli Starfsmannafélags Húsavíkur og samninganefndar ríkisins. Samningurinn er á svipuðum nótum og SFR og Kjölur gerðu í gær og fyrradag og verður samkomulag þess efnis undirritað í næstu viku.
Frekari kynning á innihaldi samningsins verður birt á heimasíðunni á næstu dögum.
Helstu atriði í kjarasamningi STH
Þann 29. maí undirrituðu samninganefndir Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samflots bæjarstarfsmannafélaga nýjan kjarasamning milli aðila. Samningurinn gildir fyrir félagsmenn Starfsmannafélags Húsvíkur sem starfa hjá Norðurþingi og tengdum stofnunum. Read more „Helstu atriði í kjarasamningi STH“
Sumargleði á Raufarhöfn
Samningaviðræður í gangi
Fulltrúar Framsýnar hafa undanfarið setið á samningafundum við sínum viðsemjendum. Varaformaður félagsins, Kristbjörg Sigurðardóttir, hefur síðustu daga tekið þátt í samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands sem átt hefur í viðræðum við ríkið en Framsýn er aðili að samningnum. Hugsanlega verður skrifað undir kjarasamning í kvöld. Read more „Samningaviðræður í gangi“
Vel heppnuð orlofsferð að baki
Framsýn stóð fyrir vel heppnaðri orlofsferð um liðna helgi. Á þriðja tug félagsmanna nýtti tækifærið og fór í skoðunarferð um Norðausturland dagana 28.-29. maí.
Haldið var af stað frá Húsavík klukkan 8 á laugardagsmorgni. Fyrst var farið í Mývatnssveitina og kíkt í Dimmuborgir, Grjótagjá og Námaskarð. Read more „Vel heppnuð orlofsferð að baki“