Félagsmenn Verkalýðsfélags Þórshafnar samþykktu sáttatillögu ríkissáttasemjara.
Almennt verkafólk: Kjarasamningur Samtaka atvinnulífsins og VÞ
Á kjörskrá voru 125, atkvæði greiddu 38 eða 30%. Já sögðu 32, nei sögðu 5 og einn seðill var auður. Sáttatillagan var því samþykkt
Verslunar og skrifstofufólk: Kjarasamningur Samtaka atvinnulífsins og VÞ
Á kjörskrá voru 18, atkvæði greiddu 10 eða 56%. Já sögðu 10. Sáttatillagan var því samþykkt.
Félagsmenn í Verkalýðsfélagi Þórshafnar samþykktu sáttatillögu ríkissáttasemjara. Í næstu viku greiða bræðslumenn atkvæði um sérkjarasamning VÞ og Samtaka atvinnulífsins.