Flugfargjöld stéttarfélaganna taka breytingum um áramótin

Félagsmenn Framsýnar, Þingiðnar, Starfsmannafélags Húsavíkur og Verkalýðsfélags Þórshafnar gefst kostur á að fljúga á stéttarfélagsfargjaldi á eigin vegum fyrir kr. 12.000 frá og með næstu áramótum. Það er á flugleiðinni Reykjavík-Húsavík. Nánari upplýsingar eru í boði á Skrifstofu stéttarfélaganna. Stéttarfélögin

Viltu vera félagi í Framsýn?

Á árinu 2021 greiddu fjölmargir launamenn til Framsýnar stéttarfélags iðgjöld skv. ákvæðum kjarasamninga. Félagið gætir hagsmuna þeirra allra gagnvart atvinnurekendum í héraði og fer með umboð þeirra í samstarfi við verkalýðshreyfinguna á landsvísu. Allir sem greitt er af til félagsins afla sér réttinda í sjóðum þess og njóta verndar þeirra kjarasamninga sem félagið gerir og allir sem greitt er af eru færðir á félagaskrá sem fullgildir félagsmenn nema þeir óski eftir því að vera ekki á henni. Það athugist að einungis fullgildir félagsmenn njóta kosningaréttar og kjörgengis í félaginu. Hér með er þeim tilmælum beint til þeirra launamanna sem greiddu iðgjöld til félagsins á árinu 2021  en vilja ekki vera á félagsskrá sem fullgildir félagsmenn að hafa samband við Skrifstofu stéttarfélaganna á Húsavík sem allra fyrst. Rétt er þó að taka fram að öruggast er fyrir greiðandi launamenn til Framsýnar að ganga formlega í félagið með því að undirrita inntökubeiðni þess efnis sem hægt er að nálgast á heimasíðu félagsins eða á Skrifstofu stéttarfélagana. Þannig gerast menn fullgildir félagsmenn.

Stjórn Framsýnar stéttarfélags

Við leitum af ungu efnilegu fólki

Innan Framsýnar er starfandi Ungliðaráð Framsýnar sem skipað er til eins árs í senn. Ungliðaráðið skal skipað fjórum félagsmönnum á aldrinum 16-35 ára. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum formanns, ritara og tveggja meðstjórnenda. Leitast skal við að kynjaskiptingin sé jöfn í ráðinu. Ungliðaráðið skal starfa á vettvangi Framsýnar undir heitinu FRAMSÝN-UNG. Ungliðaráðið skal starfa náið með stjórn og trúnaðarráði Framsýnar að þeim málefnum sem aðilar ákveða að vinna að hverju sinni með sérstaka áherslu á málefni ungs fólks. Það er að tryggja að hugað sé að stöðu og hagsmunum ungs launafólks í stefnu verkalýðshreyfingarinnar og að rödd unga fólksins heyrist í starfi og stefnumótun Framsýnar stéttarfélags. Þá skal ungliðaráðið vera tengiliður Framsýnar við starf ungliða á vettvangi ASÍ á hverjum tíma. Þeir sem vilja taka þátt í þessu starfi og leggja sitt að mörkum til að bæta stöðu ungs fólks er vinsamlegast beðið um að hafa samband við formann Framsýnar, Aðalstein Árna Baldursson á netfangið kuti@framsyn.is

Uppstilling framundan -Alltaf pláss fyrir áhugasama

Eftir áramótin hefst vinna hjá Uppstillinganefnd Framsýnar að stilla upp fólki í trúnaðarstöður fyrir félagið til næstu tveggja ára, það er frá árinu 2022 til 2024 sem er komandi kjörtímabil. Stilla þarf upp í stjórn, varastjórn, trúnaðarráð, stjórnir sjóða og nefnda á vegum félagsins og leggja fyrir aðalfund félagsins sem haldinn verður fyrir vorið 2022. Samtals þarf að stilla upp um 80 félagsmönnum í þessi embætti sem getið er um á heimasíðu félagsins undir stjórn og nefndir. Skorað er á áhugasama félagsmenn, sem eru á vinnumarkaði, að gefa kost á sér í þessi gefandi embætti á vegum eins öflugasta stéttarfélags landsins. Áhugasamir sendi póst á netfangið kuti@framsyn.is fyrir 20. janúar 2022.

Framsýn styrkir björgunarsveitina Núpa

Kristján Ingi Jónsson formaður Björgunarsveitarinnar Núpa í Öxarfirði kom við á Skrifstofu stéttarfélaganna á aðventunni og tók við 250.000 króna gjöf frá Framsýn. Gjöfin er hluti af framlagi Framsýnar til björgunarsveita í Þingeyjarsýslum. Um 30 manns eru skráðir í sveitina sem er með aðstöðu á Kópaskeri. Að sögn Kristjáns Inga er unnið að því að efla sveitina með kaupum á tækjum og þá er mikill áhugi fyrir því að eignast nýtt og hentugt húsnæði undir starfsemina

Gleðitíðindi – samningur framlengdur

Fulltrúar frá Flugfélaginu Erni og stéttarfélögunum í Þingeyjarsýslum funduðu í síðustu viku. Tilgangur fundarins var að endurnýja samning aðila um flugfargjöld milli Húsavíkur og Reykjavíkur. Viðræðurnar gengu vel enda hafa aðilar átt mjög gott samstarf á þessum vetfangi. Ákveðið var að framlengja samninginn með kaupum stéttarfélaganna á þúsund flugmiðum. Samningnum fylgir smá hækkun á flugfargjöldum sem hafa reyndar ekki hækkað í nokkur ár en flugfélagið þarf nú að bregðast við hækkun eldsneytisverðs, launahækkana og annarra verðhækkana sem tengjast flugstarfsemi. Samkvæmt samningnum verður verðið kr. 12.000,- per flugmiða frá 1. janúar 2022. Það er, stéttarfélögin munu áfram selja miðann á því verði sem samið er um milli flugfélagsins og stéttarfélaganna. Ásgeir Örn Þorsteinsson sölu- og markaðsstjóri flugfélagsins og Aðalsteinn Árni frá stéttarfélögunum handsöluðu samninginn sem þeir telja hagkvæman fyrir báða aðila. Aðilar munu halda áfram samstarfi um að efla flugsamgöngur milli Húsavíkur og Reykjavíkur enda afar mikilvægt að fólki sé gefin kostur á að fljúga milli þessara landshluta.

Fréttabréfið komið í hús

Fréttabréf stéttarfélaganna er væntanlegt til lesenda um helgina en það er farið í dreifingu. Að venju er það uppfullt af fréttum úr öflugu starfi félaganna. Fréttabréfið er borið í flest hús á félagssvæðinu.

Góðir grannar eru gulls ígildi

Það var notalegt að rölta niður Skólavörðustíginn á aðventunni. Við Skólavörðustíginn  er að finna flestar listaverkaverslanir, handverkshús, gallerí og túristabúðir borgarinnar sem trekkja að og færa líf á svæðið. Gatan lætur ekki mikið yfir sér þar sem hún liggur upp á Skólavörðuholtið með sinni fjölbreytilegu blöndu af húsum, nýjum og gömlum, litlum og stórum, fábrotnum og ríkmannlegum. Í þessum húsum þrífst margvísleg starfsemi.

Skólavörðuholtið hefur í gegnum tíðina verið eitt helsta athvarf ferðamanna sem koma til Reykjavíkur. Ég ákvað því að rölta um Skólavörðustiginn og drekka í mig sögu lands og þjóðar innan um aðra túrista enda komandi frá Húsavík. Þar sem ég staldraði við framan við eina vinsælustu túristabúðina í götunni heyrði ég á tal erlendra ferðamanna sem voru auðvitað að tala um „My home town“ Húsavík, „The Eurovision town“. Ég lagði við hlustir og fylltist réttlátu stolti er ég hleraði að þeir hefðu verið á Norðurlandi og átt ánægjulega dvöl bæði á Húsavík og Akureyri. Þeir voru greinilega heillaðir af svæðinu, mannlífinu og náttúrunni. Það hafði myndast löng biðröð við búðina þar sem fólk var að kaupa minjagripi frá heimsókninni norður í land. Hvað er eðlilegra en að Þingeyingur fyllist stolti við slíkar aðstæður og smelli sér í röðina til að kaupa minjagrip. Og hvað gerir maður líka ekki til að upplifa stemninguna sem ferðamaður í borg bleytunnar?  Það mátti heyra á tali fólks að seglar með myndum frá Húsavík og Akureyri væru vinsælastir. „Beautiful, beautiful“ ómaði allt í kringum mig: „This is Akureyri, a beautiful town” sagði glaðbeittur náungi sem var næstur á undan mér í röðinni og veifaði tveimur seglum í áttina að mér.

Mér var brugðið því þarna var farið heldur frjálslega með staðreyndir. Á öðrum seglinum var mynd frá Húsavíkurhöfn með íslenskra fánanum og nafni Akureyrar undir. Hinn var hins vegar alveg ekta, með Húsavíkurhöfn og fallegustu kirkju landsins. Greinilegt var að sá sem hannaði segulinn frá Akureyri var ekki alveg með staðhætti á hreinu nema hann hafi viljað markaðssetja Akureyri með mynd frá einum krúttlegasta stað landsins, Húsavík. Væntanlega er það skýringin. Já, það er alltaf gott að eiga góða nágranna, eða eins og skáldið sagði. Það eina sem Akureyringar hafa fram yfir Húsavík, eru góðir nágrannar.

Aðalsteinn Árni Baldursson

„My home town“ Húsavík, „The Eurovision town“.

Vinaleg verslun við höfnina

Við Húsavíkurhöfn rekur Ísfell fataverslun með þekktum vörumerkjum auk þess að vera með gönguskíði og annan útbúnað sem tengist þessari vinsælu íþrótt. Þar er einnig hægt að fá faglega ráðgjöf varðandi útbúnað sem þarf til ætli menn að stunda eða æfa gönguskíði. Þær Hafdís Gunnars verslunarstjóri og Justyna Lewicka taka vel á móti öllum þeim sem leggja leið sína í búðina. Þær voru ánægðar með verslunina og sögðu mikið að gera, þar væri hægt að gera góð kaup fyrir jólin. Sá sem þetta skrifar gerði sér ferð í búðina í vikunni og tekur heilshugar undir með Justynu og Hafdísi. Vinaleg verslun með gott vöruúrval og hagstætt verð.

Verslun Ísfells er að Suðurgarði 2 þar sem veiðarfæragerð fyrirtækisins er einnig til húsa.

Átak til náms-og starfsþróunar hjá félagsmönnum Framsýnar sem starfa hjá ríkinu

Gerður hefur verið samningur á milli Þekkingarnetsins og Ríkismenntar, með aðild Framsýnar. Verkefnið er unnið á fleiri símenntunarmiðstöðvum um land allt um átak í framboði á náms-og starfsráðgjöf inn á stofnanir ríkisins á landsbyggðinni.

Samningur þessi er tilkomin vegna bókunar í kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs og Starfsgreinasambands Íslands (SGS), 1. apríl 2019. Ríkismennt, þróunar- og símenntunarsjóði, var falið að sjá um framkvæmd og fjármögnun verkefnisins sem er formlega farið af stað með gerðum samningum við símenntunarmiðstöðvar. Samkvæmt bókuninni eru samningsaðilar sammála um að hrinda þurfi af stað átaki til hvatningar til náms og starfsþróunar hjá félagsmönnum Framsýnar og annarra stéttarfélaga innan Starfsgreinasambands Íslands sem starfa hjá stofnunum ríkisins.  Þekkingarnetið sér um framkvæmd samningsins á starfssvæði sínu og býður nú ráðgjöf sérstaklega fyrir þennan hóp starfsfólks ríkisstofnana.

Samstarf Þekkingarnetsins og stéttarfélaganna er mikið og njóta félagsmenn þeirra margvíslegrar þjónustu sem er til komin eftir samstarf og sameiginleg átaksverkefni. Framsýn stéttarfélag er umsvifamest á starfssvæði Þekkingarnetsins og er mikil áhersla lögð á samstarf í fræðslumálum til að efla þjónustu við félagsmenn.

Nánar um átakið má sjá hér.

Stórbrotinn menningarviðburður – Hógværðin uppmáluð í Grobbholti

Hérna Húsavík er vinalegt kaffihús sem bíður upp á góða þjónustu og veitingar á heimsmælikvarða. Þá bíður kaffihúsið reglulega upp á áhugaverðar uppákomur. Sem dæmi má nefna að undanfarið hafa ýmsir aðilar verið fengnir til að koma og lesa upp úr skemmtilegum bókum. Í dag kl. 16:30 er komið að formanni Framsýnar að lesa upp úr bókinni „Á ferð og flugi“ með Guðna Ágústsyni sem er annálaður sagnamaður og einn vinsælasti tækifærisræðumaður þjóðarinnar. Bókin kom nýlega út og hefur selst í þúsundun eintaka. Í bókinni fer Guðni með lesendum í ferðalag um hinar dreifðu byggðir Íslands og heimsækir fólk af öllu tagi, það er skemmtilega og forvitnilega viðmælendur. Guðni gerði sér að sjálfsögðu ferð í Grobbholt á Húsavík sem orðið er eitt þekktasta fjárbú á Íslandi og töldu útgefendur því við hæfi að hafa mynd úr Grobbholti á baksíðu bókarinnar. Guðjón Ragnar Jónsson fylgdi Guðna á þessum ferðum og hefur skrásett á aðgengilegan og grípandi hátt það sem á daga þeirra dreif. Í stuttu máli, þá er bókin fyndin og um leið upplýsandi bók um lífið í sveitum landsins sem rígheldur lesendum í fylgd með Guðna Ágústsyni frá Brúnastöðum. Bókinn færst m.a. í Pennanum á Húsavík á góðu verði.

Bókin, Guðni á ferð á flugi hefur fengið góða dóma. Formaður Framsýnar, sem er hér með sjálfum Guðna Ágústsyni kemur fyrir í bókinni enda hefur fjárræktin í Grobbholti vakið heimsathygli að sögn frístundabænda í Grobbholti sem við tökum lítið sem ekkert mark á.
Setið í sólinni á Húsavík, Guðni, Aðalsteinn Árni, og feðgarnir Guðjón Ragnar og Ágúst.
Staðan tekin á leiðinni upp í Grobbholt, Hannes Höskuldar, Guðni og Þráinn Gunnarsson. Það verður seint sagt um þessa menn að þeir séu skoðanalausir.

Þær sjá um flugið

Þær Lilja Dóra hjá Flugfélaginu Erni og Linda Margrét starfsmaður stéttarfélaganna á Húsavík eru í góðu sambandi enda fljúga fjölmargir félagsmenn stéttarfélaganna reglulega með flugfélaginu milli Húsavíkur og Reykjavíkur. Þær hittust nýlega í Reykjavík og notuðu tækifærið til að fara aðeins yfir stöðuna. Á þessu ári hafa yfir tvö þúsund flugmiðar verið keyptir hjá stéttarfélögunum. Í eðlilegu ári hafa félagsmenn verslað rúmlega fjögur þúsund flugmiða. Þess er vænst að svo verði á næsta ári enda verði allt komið í eðlilegt horf aftur og Covid draugurinn horfinn á braut.

Kæra Framsýnar og Þingiðnar ekki tekin til greina

Árið 2021, fimmtudaginn 25. nóvember, fundaði úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála í gegnum fjarfundabúnað. Þátt tóku Ómar Stefánsson varaformaður, Aðalheiður Jóhannsdóttir prófessor og Þorsteinn Þorsteinsson byggingarverkfræðingur.

Fyrir var tekið mál nr. 61/2021, kæra á ákvörðun bæjarstjórnar Garðabæjar frá 18. mars 2021 um að samþykkja nýtt deiliskipulag fyrir norðurhluta Hnoðraholts.

 Í málinu er nú kveðinn upp svofelldur úrskurður:

 Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 12. maí 2021, er barst nefndinni sama dag, kæra Framsýn stéttarfélag og Þingiðn, félag iðnaðarmanna, þá ákvörðun bæjarstjórnar Garðabæjar frá 18. mars 2021 að samþykkja nýtt deiliskipulag fyrir norðurhluta Hnoðraholts. Er þess krafist að ákvörðunin verði felld úr gildi en til vara að „hið auglýsta deiliskipulag á svæðinu handan sveitarfélagamarka Kópavogs og Garðabæjar gegnt Þorrasölum, sem skv. deiliskipulaginu er úrskýrt[sic] sem: Vorbraut í stokk eða lega endurskoðuð við deiliskipulag golfvallar sem og tenging við gatnakerfi Kópavogs við Leirdalsop verði fellt úr gildi.“

Með bréfi til úrskurðarnefndarinnar, dags. 12. maí 2021, er barst nefndinni sama dag, kæra 20 tilgreindir íbúar við Þrymsali, Kópavogi, sömu ákvörðun bæjarstjórnar Garðabæjar með kröfu um ógildingu hennar. Til vara er þess krafist að sá hluti deiliskipulagsins sem kallast Vorbraut 21-55 verði felldur úr gildi og til þrautavara að byggð á svæðinu skv. samþykktu deiliskipulagi verði felld úr gildi á 25 metra belti og færð að lágmarki 25 metra fjær núverandi byggð við Þrymsali í Kópavogi. Verður það kærumál, sem er nr. 62/2021, sameinað máli þessu þar sem sama ákvörðun er kærð til ógildingar og hagsmunir kærenda þykja ekki standa því í vegi.

Gögn málsins bárust úrskurðarnefndinni frá Garðabæ 16. september 2021.

Málavextir: Deiliskipulagsvinna fyrir Hnoðraholt norður fór fram samhliða breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030, sem sett er fram sem rammahluti aðalskipulags, og nær til vestasta hluta Vífilstaðalands, þ.e. Hnoðraholts, Vetrarmýrar, Vífilsstaða, Smalaholts, Rjúpnadals og Vífilsstaðahrauns. Á svæðinu var í gildi deiliskipulag frá árinu 1996 fyrir Hnoðraholt og Vetrarmýri og samkvæmt því var gert ráð fyrir íbúðahverfi á Hnoðraholti norður. Samkvæmt því deiliskipulagi var gert ráð fyrir 78 einbýlishúsum og 54 raðhúsum á svæðinu. Í hinu nýja deiliskipulagi er gert ráð fyrir 450 íbúðum í einbýlishúsum, raðhúsum og fjölbýlishúsum á svæðinu og 20.000 m2 af atvinnuhúsnæði.

Deiliskipulagstillaga fyrir Hnoðraholt norður var kynnt í samræmi við 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 frá 3. desember 2019 til 6. janúar 2020. Einnig var boðað til kynningarfundar 10. desember 2019. Þær ábendingar sem bárust voru lagðar fram á fundi skipulagsnefndar 16. janúar 2020. Á fundi bæjarstjórnar 5. maí s.á. var samþykkt að vísa deiliskipulagstillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Var hún auglýst 11. júní 2020 með athugasemdafresti til 7. september s.á. Á fundi skipulagsnefndar 12. nóvember s.á. var deiliskipulagstillagan samþykkt með breytingu og sú afgreiðsla staðfest á fundi bæjarstjórnar 19. nóvember s.á. ásamt umsögn um framkomnar athugasemdir samkvæmt 41. gr. skipulagslaga.

Eftirfarandi breytingar voru samþykktar á hinni auglýstu tillögu. Götur fengu götuheiti í samræmi við samþykkt skipulagsnefndar 29. október 2020. Fjölbýlishúsum F-5 við austurhluta Vorbrautar með 47 íbúðum og 4 innkeyrslum var breytt í raðhús R-1 og 4 raðhúslengjur við tvær botnlangagötur með 18 íbúðareiningum. Fjölbýlishús voru 2-3 hæðir en raðhús verða 2 hæðir. Leiksvæði var bætt við austan við raðhúsin á móts við Þorrasali 13-15. Fjölgað var stígatengingum frá stíg meðfram bæjarmörkum Kópavogs inn á stíga og gangstéttar í Þrymsölum og Þorrasölum í Kópavogi og sett inn ákvæði um að Vorbraut milli golfbrauta og fjölbýlishúsa við Þorrasali yrði niðurgrafin. Útfærslum golfboltavarna var vísað til deiliskipulags golfvallarins. Hnoðraholtsbraut var breytt á þann veg að núverandi gata héldist óbreytt en í stað tengingar að sunnan var hún framlengd upp á holtið til norðurs og tengd þar Vetrarbraut við hringtorg. Vetrarbraut næði norður yfir holtið að Arnarnesvegi, heiti núverandi Hnoðraholtsbrautar í holtinu var breytt í Hnoðraholt en heiti brautarinnar frá Karlabraut að Vetrarbraut héldi sér. Tengingar við Eskiholt, Hrísholt og Háholt yrðu óbreyttar, þ.e. beint við Hnoðraholt, og Vetrarbraut yrði breikkuð í 4 akreinar til norðurs frá Þorraholti að Arnarnesvegi. Í sérskilmálum fyrir fjölbýlishús F-1 og F-2 var lengd uppbrota breytt úr 6 m í 8 m. Kaflar 2 og 3 voru sameinaðir í einn kafla sem nefnist Deiliskipulag og almennir skilmálar og númer annarra kafla samræmd þeirri breytingu. Í kafla 2.4 var breytt tilvísun í útfærslu leiksvæða. Bætt var við texta um viðmiðunarmörk hljóðvistar í kafla 2.18 og texti í kafla 3.11 felldur út um að B-rými reiknist ekki með. Lóðir F-2 fjölbýlishúsa í kafla 3.2 voru minnkaðar vegna snúningshausa og töflum því breytt í yfirlitstöflu í kafla 3.14.1.

Skipulagsstofnun barst deiliskipulagið til yfirferðar 11. desember 2020. Beðið var með að afgreiða það þar til fyrir lægi endanleg samþykkt vegna aðalskipulagsbreytingar sem þá var í vinnslu. Stofnunin sendi þó leiðbeiningar um nánari útfærslu deiliskipulagsins áður en það var tekið til endanlegrar afgreiðslu bæjarstjórnar. Deiliskipulagið var tekið fyrir að nýju á fundi bæjarstjórnar 18. mars 2021 vegna athugasemda Skipulagsstofnunar, sbr. minnisblað, dags. 25. febrúar 2021. Bæjarstjórn samþykkti að fallast á athugasemdir Skipulagsstofnunar og voru deiliskipulagsgögn uppfærð og löguð í samræmi við þær athugasemdir. Með erindi, dags. 19. mars 2021, var deiliskipulagið sent að nýju til Skipulagsstofnunar til yfirferðar samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og gerði stofnunin ekki athugasemd við að birt yrði auglýsing um samþykkt þess og birtist sú auglýsing í B-deild Stjórnartíðinda 13. apríl 2021.

 Málsrök kærenda: Af hálfu kærenda er vísað til þess að eitt af markmiðum skipulags sé að draga úr óvissu og auka fyrirsjáanleika eins og kostur sé. Þetta sé m.a. gert til þess að draga úr væntum kostnaði og óhagræði fyrir hagsmunaaðila. Það að Garðabær muni leggja í kostnað upp á tvö þúsund milljónir í tengingu sem eigi eingöngu að þjónusta 11-12% af umferð inn og út úr hverfinu sé ekki trúverðugt. Þegar óvissa skipulags sé með þeim hætti að nánast engar líkur séu á að sá kostur sem settur sé fram komi til framkvæmda sé óhætt að tala um óraunhæft og þar af leiðandi ónýtt skipulag. Þetta telji kærendur vera uppi á teningnum í tengslum við að Vorbraut verði lögð í stokk.

Fyrir liggi að Skipulagsstofnun hafi synjað Garðabæ um afgreiðslu aðal- og deiliskipulagsbreytingar vegna Hnoðraholts norður sökum þess að ekki hafi verið búið að ná samkomulagi við Kópavogsbæ um vegtengingar Vorbrautar við vegakerfi innan Kópavogs. Vegna þessarar ákvörðunar Skipulagsstofnunar hafi Garðabær verið þvingaður til samninga við Kópavogsbæ varðandi veglagninguna. Sú afgreiðsla Garðabæjar sé öll í skötulíki þar sem endanleg staðsetning og lega vegarins liggi alls ekki fyrir.

Á kynningartíma deiliskipulagsins hafi Kópavogur hafnað tengingu fyrirhugaðrar Vogabrautar við Arnarnesveg í Leirdalsopi þar sem veglagningin væri ekki framkvæmanleg vegna nálægðar við fjölbýlishús við Þorrasali og 13. braut golfvallar GKG. Bent hafi verið á þann möguleika að vegurinn færi í stokk á þeim stað sem hann færi meðfram fjölbýlishúsunum. Í athugasemdum Kópavogsbæjar hafi sérstaklega verið tekið fram að færi vegurinn ekki í stokk á umræddu svæði myndu bæjaryfirvöld útiloka vegtenginguna við gatnakerfi Kópavogs. Það „samkomulag“ sem liggi fyrir milli sveitarfélaganna sé ekki endanlegt. Í sjálfu samkomulaginu segi að Garðabær skuli breyta samþykktri tillögu að nýju deiliskipulagi þannig að vegurinn verði settur í stokk. Þrátt fyrir það setji Garðabær inn ákvæði á skipulagsuppdrátt um að vegurinn verði annað hvort leiddur í stokk eða fundinn ný lega við mótun deiliskipulags golfvallar. Þannig sé enn gert ráð fyrir lausn sem Kópavogsbær hafi hafnað.

Í ljósi þess að endanleg lega vegarins liggi engan veginn fyrir og vegna þeirrar staðreyndar að engin fyrirheit liggi fyrir af hálfu Garðabæjar um kostnað við þá lausn að setja umræddan veg í stokk við Þorrasali megi ljóst vera að þær forsendur sem deiliskipulag Hnoðraholts norður hvíli á liggi ekki ákveðnar fyrir. Komist sveitarfélögin ekki að samkomulagi um kostnaðarskiptingu sína vegna umferðarstokks, bresti sú forsenda deiliskipulagsins að Kópavogur hafi samþykkt veglagninguna og tengingu vegarins við gatnakerfi Kópavogs. Með hliðsjón af framangreindu telji kærendur að þessar óljósu fyrirætlanir varðandi framkvæmd og fyrirkomulag veglagningar skv. deiliskipulagi Hnoðraholts norður fullnægi ekki þeim kröfum sem gera verði til deiliskipulagsgerðar og því beri að ógilda deiliskipulagið.

Af hálfu kærenda í Þrymsölum 1-19 er á það bent að hið kærða deiliskipulag feli í sér grundvallarbreytingu frá gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið frá 1996. Þá felist í tillögunni grundvallarbreytingar frá áðurgildandi rammaskipulagi sem gilti fyrir svæðið. Fasteignir kærenda liggi í jaðri byggðar við bæjarmörk Kópavogsbæjar og Hnoðraholts í Garðabæ og hafi þeir verulega grenndarhagsmuni að gæta.

Áður en kærendur hafi keypt lóðir sínar hafi þeir kynnt sér gildandi deiliskipulag fyrir Hnoðraholt enda skipti byggð sunnan við lóðir þeirra þá verulegu máli. Gildandi deiliskipulag Hnoðraholts, sem staðið hafi óbreytt í nær 25 ár, sýni að í Hnoðraholti næst fasteignum kærenda séu í skipulagi einnar hæðar sérbýli sem standi í hæfilegri fjarlægð frá lóðarmörkum ystu byggðar við Þrymsali. Sú byggð samræmist vel heildarskipulagi svæðisins. Nú sé horfið frá lágreistri sérbýlishúsabyggð og í stað þess gert ráð fyrir tveggja hæða raðhúsum sem standa muni afar nálægt núverandi byggð við Þrymsali.

Með gerð rammaskipulags séu lagðar meginlínur í skipulagi svæða eða bæjarhluta. Þar komi fram stefnumörkun sveitarfélags fyrir áframhaldandi deiliskipulagsvinnu. Í gildandi rammaskipulagi fyrir Hnoðraholt frá árinu 2008 sé sérstaklega tekið fram að allir íbúar eigi að njóta útsýnis. Í kafla um húsagerðir sé tekið fram að í Hnoðraholti komi lágreist byggð. Ennfremur sé þar að finna eftirfarandi texta: „Leitast er við að nýta þennan landhalla til jákvæðra hluta m.a. er lögð áhersla á að sem flestir njóti útsýnis og til að auka á fjölbreytileika í húsgerðum.“ Hið kærða deiliskipulag geri ráð fyrir tveggja hæða raðhúsum efst og næst húsum við sérbýlishúsabyggðina við Þrymsali og fari það algjörlega gegn rammaskipulagi svæðisins. Íbúar við Þrymsali og kærendur eigi ekki að þurfa að sæta því að skipulagsvaldinu sé beitt með svo grófum hætti að deiliskipulagið á svæðinu sé með öllu tekið upp og gerðar á því slíkar grundvallarbreytingar að öllum forsendum sem áður hafi verið boðaðar sé nú breytt. Slík misnotkun skipulagsvalds sé brot á stjórnarskrárvörðum eignarrétti kærenda, sbr. 72. gr. stjórnarskrár Íslands. Við meðferð skipulagsvalds beri sveitarfélögum einnig að hafa í heiðri meginreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og sé þá einkum vísað til grundvallarreglna eins og þeirri að stjórnvöldum beri að gæta meðalhófs. Það felist ekkert meðalhóf í að gera þær grundvallarbreytingar sem um sé að ræða í þessu máli. Þá sé einnig brotið á rannsóknarreglu stjórnsýslulaga, en engin athugun eða mat hafi farið fram á hagsmunum kærenda við málsmeðferð deiliskipulagsins.

Kærendur hafi haft réttmætar væntingar til þess að það svæði sem standi þeim næst taki ekki grundvallarbreytingum frá áður gildandi skipulagi. Skipulagsvald sveitarfélaga afmarkast af slíkum réttmætum væntingum eins og fordæmi dómstóla beri með sér, sbr. t.d. Hrd. 138/2012. Með hinu kærða deiliskipulagi sé verið að beita deiliskipulagsvaldi við mörk tveggja sveitarfélaga. Þó hvert sveitarfélag hafi visst forræði á skipulagsvaldi sínu innan marka skipulagslaga beri sveitarfélagi að gæta að hagsmunum nágranna sinna. Skylt sé að taka eðlilegt tillit til byggðar nágrannasveitarfélagsins. Samkvæmt svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins skuli byggjast upp blönduð byggð í Hnoðraholti. Sú blandaða byggð verði að taka mið af húsagerðum og einkennum þess svæðis sem næst standi. Það svæði einkennist af einbýlishúsum en síðan fjölbýlishúsum við Þorrasali. Eðlilegast sé því að tryggja samræmi í hinni blönduðu byggð sem standi næst sérbýlishúsabyggðinni í stað þess að brjóta upp mynstur húsagerðar. Hið kærða deiliskipulag geri ráð fyrir verulegri breytingu á hæð og legu húsa. Fjarlægð milli húsa sitt hvoru megin sveitarfélagamarkanna hafi styst úr 60 m í 20 m. Vegna mikils landhalla á svæðinu þýði það að byggðin muni standa a.m.k. 3-6 m hærra og 40 m nær en vænta hafi mátt miðað við rammaskipulag. Auk þess sé ekki lengur gert ráð fyrir einbýlishúsum heldur tveggja hæða raðhúsalengjum. Garðabær sé bundinn af þeim fyrirheitum sem gefin hafi verið með rammaskipulaginu frá árinu 2008. Þar hafi verið kveðið á að um væri að ræða stefnumörkun um helstu skipulagssjónarmið Hnoðraholts og tengsl þess við aðliggjandi svæði. Ekki verði séð að knýjandi nauðsyn hafi borið til að breyta skipulagi svæðisins á eins afdrifaríkan hátt og gert hafi verið. Öllum megi vera ljóst að deiliskipulagið rýri verðmæti eigna við Þrymsali.

Kærendur upplifi að ekkert samráð hafi verið haft við húseigendur í Þrymsölum við gerð deiliskipulagsins. Samráð feli í sér samtal og að réttmætt tillit sé tekið til málefnalegra athugasemda sem samræmist þeim skipulagsmarkmiðum sem gilt hafi fyrir svæðið bæði samkvæmt deiliskipulagi og rammaskipulagi. Svör Garðabæjar við athugasemdum kærenda hafi verið mjög rýr. Þá hafi gengið treglega að afla gagna frá Garðabæ við gerð athugasemda. Auglýsing á skipulaginu hafi verið birt 10. júní 2020 og frestur til athugasemda gefinn til 7. september s.á. Beiðni um gögn frá Garðabæ hafi verið send með tölvupósti 20. júní og ítrekuð 26. s.m., 10. ágúst og svo 27. ágúst þar til henni hafi verið svarað 28. ágúst. Þá hafi verið of seint að nýta gögnin við gerð athugasemda fyrir uppgefinn frest.

Umrætt deiliskipulag feli í sér ólögmæta skerðingu á gæðum fasteigna kærenda. Í 51. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 felist hlutlæg bótaregla þegar skipulagsgerð valdi tjón. Kærendur áskilja sér allan rétt til að leggja fram rökstudda bótakröfu á hendur Garðabæ.

 Málsrök Garðabæjar: Bæjaryfirvöld benda á að framsetning skipulagsins um að Vorbraut skuli lögð í stokk fullnægi vel kröfum skipulagslaga og skipulagsreglugerðar um framsetningu og skýrleika skipulagsákvarðana. Enginn vafi sé um efni skipulagsins varðandi það að umræddur vegur skuli lagður í stokk og væri ekki hægt að víkja frá þeirri ákvörðun að óbreyttu skipulagi. Breyti þar engu þótt í skipulaginu sé vikið að þeim möguleika að marka veginum aðra legu við mótun deiliskipulags golfvallar, enda þyrfti þá að koma til breytingar á deiliskipulaginu. Megi einnig benda á að Garðabær hefði vel getað fitjað upp á slíkri breytingu alveg óháð því hvort á þennan möguleika væri minnst í hinu umdeilda skipulagi eða ekki, enda liggi skipulagsvaldið hjá sveitarfélaginu. Þá geti það ekki talist ágalli á skipulagi að ekki liggi fyrir samkomulag um skiptingu kostnaðar af innviðauppbyggingu milli sveitarfélaga eða trygging fyrir fjármögnun framkvæmda, enda sé hvergi í skipulagslöggjöfinni heimild fyrir því að slík skilyrði verði sett fyrir samþykkt deiliskipulags. Loks sé rétt að taka fram um þennan þátt málsins að deiliskipulag umrædds svæðis sé ekki háð samþykki Kópavogsbæjar umfram það sem varði tengingar samgöngukerfa yfir sveitarfélagamörk. Að öðru leyti sé aðeins um samráðsskyldu að ræða.

Deiliskipulagið frá 1996 sem vitnað sé til í kærunum hafi verið sett í gildistíð skipulagslaga nr. 19/1964 þegar allt aðrar kröfur hafi verið gerðar til framsetningar skipulags. Þá sé skipulagi frestað fyrir stóran hluta svæðisins og mátti kærendum vera ljóst að ekki væri raunhæft að hafa miklar væntingar á grundvelli þessa gamla skipulags um framtíðauppbyggingu svæðisins. Komi þar bæði til aldur skipulagsins og það hversu stór hluti þess beri það með sér að vera ekki endanlegur. Skipti hér einnig máli að eignir kærenda séu á öðru skipulagssvæði og í öðru sveitarfélagi en hið umdeilda skipulag og geti þeir því ekki byggt á því að skipulagi þess svæðis sem eignir þeirra séu á hafi verið breytt, sbr. þau sjónarmið sem sett séu fram í áliti umboðsmanns Alþingis nr. 727/1992 þar sem segi m.a.: „Þar sem skipulag er bindandi bæði fyrir stjórnvöld og almenning um framtíðarnot tiltekins svæðis og er almennt ætlaður langur gildistími, verður að vanda til þess. Hönnun og bygging mannvirkja er meðal annars reist á forsendum, sem fram koma í skipulagi. Verður almenningur því að geta treyst því, að festa sé í framkvæmd skipulags og að því verði almennt ekki breytt, nema veigamiklar ástæður mæli með því. Ber þar að taka tillit til réttmætra hagsmuna þeirra, er breyting skipulags varðar. Skal hér áréttað, að skipulag er í senn stjórntæki stjórnvalda um þróun byggðar og landnotkun, og trygging almennings fyrir því, að allar framkvæmdir innan marka skipulags séu í samræmi við það.“

Með þessu sé ekki sagt að fasteignaeigendur geti ekki átt lögvarða hagsmuni tengda breytingu á skipulagi á aðliggjandi skipulagsreitum, jafnvel í öðrum sveitarfélögum. Hins vegar megi segja að deiliskipulagi nýs byggingarsvæðis í þéttbýli megi jafna til einhvers konar sáttmála milli viðkomandi sveitarfélags og lóðarhafa á skipulagssvæðinu en sama máli gegni ekki um skipulag aðliggjandi svæða. Megi sem dæmi um hagsmuni íbúa aðliggjandi svæða og/eða aðliggjandi sveitafélaga tengda breytingu á deiliskipulagi nefna mál nr. 4/2002 fyrir úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála þar sem íbúar í Seljahverfi í Reykjavík og Salarhverfi í Kópavogi kærðu breytingu á deiliskipulagi við Rjúpnasali í Kópavogi en hagsmunir þeirra af breytingunni voru ekki taldir eiga að standa í vegi fyrir henni.

Tæpum tveimur árum eftir gildistöku skipulagsins frá 1996 hafi tekið gildi skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997. Þar hafi verið kveðið á um að deiliskipulag skyldi gera á grundvelli aðalskipulags fyrir einstök svæði eða reiti þar sem framkvæmdir væru fyrirhugaðar og sé sambærilegt ákvæði nú í 2. mgr. 37. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Miði ákvæði þetta að því að ekki sé ráðist í gerð deiliskipulags fyrir byggingarsvæði til framtíðar fyrr en þar séu fyrirhugaðar framkvæmdir og uppbygging og að þannig verði komið í veg fyrir að deiliskipulag sé gert langt inn í framtíðina sem skapa kunni væntingar um tiltekið fyrirkomulag byggðar eða byggðamynstur enda þurfi við skipulagsgerð að vera hægt að taka mið af breyttum þörfum og aðstæðum í samfélaginu á hverjum tíma. Megi þannig vera ljóst að áratugagamalt skipulag sem ekki hafi komið til framkvæmda kunni að vera úrelt og jafnvel í andstöðu við breytta stefnu um þéttleika byggðar og annað það sem máli skipti við gerð skipulags. Í þessu ljósi megi segja að skipulagið frá 1996 hafi byggst á úreltum réttarheimildum og að öllum hlutaðeigendum hafi átt að vera ljóst að til endurskoðunar þess hlyti að koma. Leiði og af þessu að þeim mun eldra sem deiliskipulag sé án þess að það hafi komið til framkvæmda, því minna traust og væntingar geti nágrannar reist á tilvist þess. Sú áhersla sem kærendur leggi á það að eldra deiliskipulag Hnoðraholts hafi staðið óbreytt í nær 25 ár missi af þessum sökum marks.

Í þessu sambandi skipti einnig máli að þegar deiliskipulagið frá 1996 hafi verið gert hafi allt aðrar forsendur verið fyrir skipulagsgerð á umræddu svæði en síðar. Þannig hafi t.d. ekki verið gert ráð fyrir blokkunum við Þorrasali í þágildandi skipulagi Kópavogs og hefði ekki verið unnt að byggja húsið nr. 1-3 við Þorrasali á þeim stað sem það standi vegna þess að fyrirhuguð lega Arnarnesvegar hafi verið önnur á þeim tíma og lóð hússins því á helgunarsvæði vegarins. Garðabær hafi því ekki þurft á þeim tíma að taka tillit til þéttrar íbúðarbyggðar á þessu svæði við uppbyggingu á því svæði þar sem deiliskipulagi hafi verið frestað í skipulaginu frá 1996. Í Aðalskipulagi Kópavogs frá 2012 sé hins vegar búið að færa legu Arnarnesvegar og skapa þannig möguleika á íbúðarbyggð að sveitarfélagamörkum á þessu svæði og segi þar að í samþykktu deiliskipulagi fyrir Hnoðraholt – Smalaholt, sem afmarkist af Arnarnesvegi til norðurs og sveitarfélagsmörkum Garðabæjar og Kópavogs til suðurs sé gert ráð fyrir að byggðin aukist frá núverandi stöðu um 140 íbúðir að mestu í fjölbýli við Þorrasali. Það sé því alveg ljóst að forsendur fyrir skipulaginu frá 1996 hafi verið gjörbreyttar eftir þessar tilfærslur.

Deiliskipulag það sem þarna sé vitnað til fyrir Hnoðraholt – Smalaholt í Kópavogi sé frá árinu 2006 og geri það ráð fyrir verulega aukinni byggð á umræddu svæði frá því sem áður hafi verið. Þá sé þessu skipulagi svo háttað að lóðir séu látnar ná að mörkum sveitarfélaganna og megi því segja að Kópavogsbær hafi átt stóran þátt í því að skapa þá nálægð og óhagræði sem íbúar þar setji nú fyrir sig. Auki það enn á þessi vandræði að deiliskipulagi fyrir Hnoðraholt – Smalaholt í Kópavogi frá 2006 hafi verið breytt á þann veg að fjölbýlishúsin við Þorrasali snúi aðalhlið (langhlið) sinni að sveitarfélagamörkum en í upphaflegu deiliskipulagi hafi endi húsanna snúið frá mörkum sveitarfélaganna. Megi því segja að þær aðstæður sem kærendur í Þorrasölum búi við séu að mestu til komnar vegna ákvarðana Kópavogsbæjar í skipulagsmálum. Við þessu hafi Garðabær reynt að bregðast, m.a. með því að gera ráð fyrir göngustíg og breiðu auðu svæði samsíða honum meðfram mörkum sveitarfélaganna inni á sínu landi og auki það fyrirkomulag verulega á gæði svæðisins. Þá sé hæð húsa haldið í lágmarki á því svæði þar sem skipulagi hafi verið frestað en þar hefðu kærendur þurft að sætta sig við miklu hærri byggð, sbr. Áðurnefndan úrskurð í máli nr. 4/2002 fyrir úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála.

 Viðbótarathugasemdir kærenda: Af hálfu kærenda í Þrymsölum 1-19 er tekið fram að ef sjónarmið Garðabæjar yrðu lögð til grundvallar væru borgarar landsins sviptir með öllu þeim fyrirsjáanleika sem sé eitt af markmiðum og beinum tilgangi skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. Einnig c-lið 1. gr. þeirra. Í því sambandi megi vísa til álits umboðsmanns Alþingis nr. 727/1992 þar sem segi: „Þar sem skipulag er bindandi bæði fyrir stjórnvöld og almenning um framtíðarnot tiltekins svæðis og er almennt ætlaður langur gildistími, verður að vanda til þess […] Verður almenningur að geta treyst því að festa sé í framkvæmd skipulags og að því verði almennt ekki breytt, nema veigamiklar ástæður mæli með því.“

Ekki komi fram í málflutningi Garðabæjar hvaða hluta skipulagssvæðis frá 1996 hafi verið frestað. Þegar kærendur hafi sótt um sínar lóðir hafi deiliskipulag Hnoðraholts verið einungis 10 ára gamalt og því eðlilegt að þeir tækju mið af þeim vísbendingum sem það hafi gefið á þeim tíma. Auk þess hafi rammaskipulagið frá 2008 stutt við þau fyrirheit sem gefin hafi verið með eldra deiliskipulaginu. Þá hafi það ekki þýðingu að aðliggjandi byggð við skipulagssvæði hins kærða deiliskipulags sé handan sveitarfélagamarka.

Hinn fyrirhugaði göngustígur meðfram mörkum sveitarfélaganna muni ekki hafa breitt autt svæði báðum megin við sig líkt og fullyrt sé í greinargerð Garðabæjar. Hann muni ekki draga úr þeim grenndaráhrifum sem tveggja hæða raðhús á hæsta punkti hins kærða deiliskipulags muni leiða af sér. Þá muni eigendur þeirra raðhúsa geta byggt svalir/útivistarsvæði sem snúi að görðum íbúa Þrymsala með tilheyrandi óþægindum og röskun á friðhelgi.

Í greinargerð Garðabæjar sé staðfest að fjármögnun og kostnaðarskipting við að setja Vorbraut í stokk liggi ekki fyrir. Deiliskipulagið hafi verið kynnt með tveimur möguleikum varðandi þessa veglagningu. Annars vegar með því að leggja veginn í stokk fyrir framan Þorrasali og hins vegar opnað á annars konar legu í samráði við GKG þar sem sú veglagning geri ráð fyrir að vegurinn liggi inn á vallarsvæði golfvallarins. Svona framsetning á deiliskipulagi gangi ekki upp. Lágmarkskrafa sé að endanleg lega vegarins liggi fyrir áður en deiliskipulag sé staðfest.

Niðurstaða: Í máli þessu er deilt um ákvörðun bæjarstjórnar Garðabæjar frá 18. mars 2021 um að samþykkja nýtt deiliskipulag fyrir Hnoðraholt norður. Samkvæmt skipulaginu er gert ráð fyrir blöndu af íbúðarhúsum frá einni hæð upp í fjórar hæðir en verslunar- og þjónustubyggingar á norðvesturhluta svæðisins ná upp í fimm hæðir með efstu hæðina inndregna. Leik- og dvalarsvæði eru í grænum geirum milli svæðanna sem og efst á holtinu.

Gerð skipulags innan marka sveitarfélags er í höndum sveitarstjórnar skv. 3. mgr. 3. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í aðalskipulagi er sett fram stefna sveitarstjórnar um þróun sveitarfélags, m.a. varðandi landnotkun, sbr. 1. mgr. 28. gr., en við gerð deiliskipulags ber að byggja á stefnu aðalskipulags auk þess sem deiliskipulag skal rúmast innan heimilda aðalskipulags, sbr. 2. mgr. 37. gr. og 7. mgr. 12. gr. nefndra laga. Við skipulagsgerð ber enn fremur að fylgja markmiðum skipulagslaga sem tíunduð eru í 1. gr. þeirra. Sveitarstjórn er einnig bundin af lögmætisreglu stjórnsýsluréttarins er felur m.a. í sér að með ákvörðun sé stefnt að lögmætum markmiðum. Að gættum þessum grundvallarreglum hefur sveitarstjórn mat um það hvernig deiliskipulagi skuli háttað.

Samkvæmt 7. mgr. 12. gr. skipulagslaga skulu gildandi skipulagsáætlanir vera í innbyrðis samræmi. Svæðisskipulag er rétthærra en aðalskipulag og aðalskipulag rétthærra en deiliskipulag. Við gerð nýrra skipulagsáætlana eða breytinga á þeim skulu sveitarstjórnir taka mið af gildandi landsskipulagsstefnu. Gert hafði verið rammaskipulag fyrir svæðið á árinu 2008, en ekki hafði verið unnið nýtt deiliskipulag á grundvelli þess rammaskipulags sem hefur ekki skuldbindingargildi að lögum. Bæjarstjórn nýtti sér heimild 2. mgr. 41. gr. og var aðalskipulagi breytt samhliða hinu kærða deiliskipulagi. Kemur fram í aðalskipulags­breytingunni að áfram sé gert ráð fyrir íbúðabyggð í Hnoðraholti ásamt leikskóla og lítilsháttar verslun og þjónustu. Í norðurhluta Hnoðraholts sé gert ráð fyrir 400-450 íbúðum og 20.000 maf atvinnuhúsnæði. Þá koma fram frekari skilmálar um uppbyggingu svæðisins. Samkvæmt hinu kærða deiliskipulagi er gert ráð fyrir 419 nýjum íbúðum til viðbótar þeim 44 sem eru þegar á vesturhluta svæðisins og verða þær því 463 í heildina þegar svæðið verður uppbyggt. Þá er gert ráð fyrir 20.000 m2 af atvinnuhúsnæði ofanjarðar auk bílakjallara. Er hið kærða deiliskipulag í samræmi við gildandi aðalskipulag svo sem því var breytt samhliða málsmeðferð deiliskipulagstillögunnar.

Umrædd deiliskipulagstillaga var auglýst til kynningar í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga og kynnt fyrir Kópavogsbæ þar sem tillagan tekur til svæðis sem liggur að mörkum sveitarfélaganna. Framkomnar athugasemdir voru teknar til umfjöllunar og þeim svarað. Bæjarstjórn samþykkti deiliskipulagstillöguna að undangenginni umfjöllun skipulagsnefndar og var tillagan send Skipulagsstofnun til lögboðinnar yfirferðar. Var formleg málsmeðferð hennar því lögum samkvæmt.

Samkvæmt skilmálum aðal- og deiliskipulags verður Vorbraut lögð í stokk austast til móts við Þorrasali nema lega hennar verði endurskoðuð við gerð deiliskipulags fyrir golfvöllinn. Verður þessi skilmáli ekki skilinn öðruvísi en svo en að samkvæmt gildandi skipulagi verði Vorbraut lögð í stokk að hluta til nema að deiliskipulagi verði breytt. Deiliskipulagsáætlanir geta breyst, að gættum þeim grundvallarreglum sem reifaðar voru að framan, og er nefndur fyrirvari af þeim sökum ekki annmarki á hinu kærðu deiliskipulagi.

Ákveði sveitarstjórn að breyta auglýstri tillögu í grundvallaratriðum skal hin breytta tillaga auglýst á ný, sbr. 4. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Eins og fram kemur í málavaxtalýsingu voru gerðar ýmsar breytingar á hinu kærða deiliskipulagi eftir auglýsingu þess. Meðal þeirra breytinga var að fjölbýlishúsum F-5 við austurhluta Vorbrautar með 47 íbúðum og 4 innkeyrslum var breytt í raðhús R-1, 4 raðhúslengjur við tvær botngötur með 18 íbúðareiningum. Fjölbýlishús voru 2-3 hæðir en raðhús verða 2 hæðir. Þá var einnig gerð breyting á Hnoðraholtsbraut þannig að núverandi gata helst óbreytt en í stað tengingar að sunnan er hún framlengd upp á holtið til norðurs og tengist þar Vetrarbraut á hringtorgi. Þrátt fyrir að um sé að ræða ýmsar breytingar sem gerðar voru eftir kynningu umræddrar deiliskipulagstillögu verður ekki talið að með þeim sé tillögunni breytt í grundvallaratriðum enda miða breytingarnar almennt að því að draga úr grenndaráhrifum með lækkun húsa og fækkun íbúða en legu vega er ekki breytt. Var því ekki nauðsynlegt að auglýsa hina kynntu tillögu að nýju vegna þeirra breytinga sem gerðar voru að lokinni kynningu hennar.

Að öllu framangreindu virtu liggja ekki fyrir þeir form- eða efnisannmarkar á undirbúningi og málsmeðferð hinnar kærðu ákvörðun sem raskað geta gildi hennar. Verður ógildingarkröfu kærenda af þeim sökum hafnað.

Rétt þykir að benda á að geti kærendur sýnt fram á tjón vegna hins kærða deiliskipulags geta þeir átt rétt á bótum, sbr. 51. gr. skipulagslaga. Það álitaefni á hins vegar ekki undir úrskurðarnefndina heldur eftir atvikum dómstóla.

 Úrskurðarorð:

Hafnað er kröfum kærenda um ógildingu ákvörðunar bæjarstjórnar Garðabæjar frá 18. mars 2021 um að samþykkja nýtt deiliskipulag fyrir norðurhluta Hnoðraholts.

Húsasmiðjan opnar söluskrifstofu

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hefur Húsasmiðjan ákveðið að loka verslun fyrirtækisins á Húsavík. Þess í stað verður opnuð söluskrifstofa í húsnæði Flytjanda á Húsavík en stéttarfélögin hafa beitt sér mjög í málinu. Höfðinginn, Jón Þormóðsson, verður áfram við störf hjá Húsasmiðjunni og mannar söluskrifstofu Húsasmiðjunnar. Opið verður alla virka daga fyrir hádegi frá og með næstu áramótum.  Jóni er ætlað að sinna bæði fagaðilum og pöntunum einstaklinga, smáum sem stórum.  Utan opnunartíma mun Jón sinna sölustörfum og þjónustu við fagaðila og fyrirtæki á svæðinu.  Tryggt verður að pantanir verði afgreiddar hratt og vel.  Verði reynslan af þessu fyrirkomulagi góð verður þjónustan endurmetin og opnunartíminn aukinn. Í samtölum við forsvarsmenn Húsasmiðjunnar hefur komið fram að þeir binda vonir við að heimamenn kunni vel að meta þessa viðleitni fyrirtækisins að halda uppi þjónustu á Húsavík þó hún verði í breyttri mynd. Sjá nánar auglýsingu frá Húsasmiðjunni verður í næsta Fréttabréfi stéttarfélaganna sem kemur út í lok næstu viku.

Upplýsingar um desemberuppbótina 2021

Samkvæmt kjarasamningum ber atvinnurekendum að greiða starfsfólki sínu desemberuppbót/persónuuppbót í byrjun desember ár hvert. Uppbótin er háð ákveðnum skilyrðum sem varða t.a.m. starfstíma og starfshlutfall á yfirstandandi ári. Full uppbót greiðist þeim sem starfað hafa í 45 vikur eða unnið 1800 stundir á árinu. Desemberuppbót skal greiða í einu lagi og ofan á hana reiknast ekki orlof. Uppbótin er föst krónutala og tekur ekki hækkunum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga. Við starfslok á að gera upp áunna desemberuppbót.

Upphæð desemberuppbótar samkvæmt kjarasamningi við ríkið og samkvæmt kjarasamningum á almennum vinnumarkaði sem og hjá iðnaðarmönnum og starfsfólki við verslun og þjónustu er kr. 96.000, miðað við 100% starfshlutfall. Starfsmenn hjá ríkinu eiga að fá desemberuppbót greidda 1. desember og iðnaðarmenn og starfsmenn á almennum vinnumarkaði eigi síðar en 15. desember. 

Upphæð desemberuppbótar samkvæmt kjarasamningi við Samband íslenskra sveitarfélaga er kr. 121.700, miðað við 100% starfshlutfall. Starfsmenn sveitarfélaga eiga að fá sína desemberuppbót greidda 1. desember, skv. kjarasamningi. Á ákveðnum tilvikum geta starfsmenn sveitarfélaga átt rétt á 50% desemberuppbót. Hér vísast í starfsmenn sveitarfélaga í Þingeyjarsýslum sem voru við störf fyrir 29. maí 2005 og voru félagsmenn í Framsýn.

Félagsmenn Framsýnar og Þingiðnar sem starfa hjá PCC á Bakka eiga rétt á 180.000 króna desemberuppbót miðað við starfstíma og starfshlutfall.

Desemberuppbót vegna ársins 2021 hjá atvinnuleitendum

Atvinnuleitendur sem staðfesta atvinnuleit milli 20. nóvember og 3. desember á árinu 2021 og eru tryggðir samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar í nóvember mánuði eiga rétt til greiðslu desemberuppbótar.

Áætlað er að greiða út desemberuppbótina 15. desember nk.

Fjárhæðir: 

Hámarksfjárhæð uppbótarinnar er 92.229 kr. og hún er aldrei lægri en 23.057 kr. 

Með hverju barni á framfærslu atvinnuleitanda er greitt aukalega 6% af óskertri desemberuppbót eða 5.534 kr. 

Greiddur er skattur af desemberuppbót. 

Skilyrði:

Staðfesta atvinnuleit milli 20. nóvember og 3. desember 2021.

Teljast tryggður í nóvember mánuði 2021.

Til að eiga rétt á fullri desemberuppbót þarf atvinnuleitandi að hafa verið skráður atvinnulaus í 10 mánuði á árinu 2021 eða meira og eiga fullan bótarétt. 

Atvinnuleitandi sem á ekki fullan bótarétt og hefur verið skráður atvinnulaus í 10 mánuði eða meira fær hlutfallslega uppbót í samræmi við rétt sinn til atvinnuleysisbóta. 

Dæmi vegna hlutabótaréttar og 10 mánuði á skrá: 

  • 75% bótaréttur þá er desemberuppbót 69.171 kr. 
  • 50% bótaréttur þá er desemberuppbót 46.114 kr. 
  • 25% bótaréttur þá er desemberuppbót 23.057 kr. 

Atvinnuleitandi sem hefur verið skráður skemur en 10 mánuði atvinnulaus fær hlutfallslega desemberuppbót miðað við fjölda mánaða sem hann hefur verið á skrá og í samræmi við bótarétt sinn. 

Dæmi ef þú hefur verið skemur en 10 mánuði á skrá: 

  • Ef þú hefur verið 4 mánuði á skrá og átt 100% bótarétt þá átt þú rétt til 40% desemberuppbót eða 36.891 kr. 
  • Ef þú hefur verið 6 mánuði á skrá og átt 50% bótarétt þá átt þú rétt til 30% desemberuppbótar eða 27.668 kr. 

Jólagjöf í boði „Fyrir neðan bakka og ofan“

Jólagjöf í boði

Framsýn stéttarfélag hefur ákveðið að gefa 50 eintök af sögu félagsins sem er í þremur bindum „Fyrir neðan bakka og ofan“. Bækurnar sem eru í fallegri öskju hafa fengið frábæra dóma og segja sögu verkalýðshreyfingar í Þingeyjarsýslum, atvinnulífs og stjórnmála á Húsavík á tímabilinu 1885 – 1985.

Þeir sem vilja eignast þessa frábæru og einstöku jólagjöf eru beðnir um að hafa samband við Skrifstofu stéttarfélaganna að Garðarsbraut 26 á Húsavík. Netfang linda@framsyn.is – Sími 4646600.