14 milljónir í fræðslustyrki til félagsmanna

Framsýn er mjög umhugað um starfsmenntun félagsmanna. Á árinu 2014 fengu 311 félagsmenn greiddar 12.439.189,- í einstaklingsstyrki frá fræðslusjóðum í endurgreiðslur vegna náms eða námskeiða. Sambærileg tala fyrir árið 2013 var kr. 10.036.496.

Námsstyrkir árið 2014 skiptast þannig milli sjóða:

156 félagsmenn fengu greidda styrki úr Landsmennt kr. 5.736.595,-.

12 félagsmenn fengu greidda styrki úr Sjómennt kr. 719.925,-.

14 félagsmenn fengu greidda styrki úr Ríkismennt kr. 435.664,-.

39 félagsmenn fengu greidda styrki úr Fræðslusjóði verslunar og skrifstofufólks kr. 1.949.902,-.

50 félagsmenn fengu greidda styrki úr Sveitamennt kr. 2.052.656,-.

Að auki fengu 40 félagsmenn sérstaka styrki úr Fræðslusjóði Framsýnar kr. 1.544.447,-. Getið er um þá í ársreikningum félagsins.

Fræðslusjóðirnir eru fjármagnaðir með framlögum frá fyrirtækjum, sveitarfélögum og ríkisstofnunum sbr. ákvæði kjarasamninga. Það á þó ekki við um Fræðslusjóð Framsýnar sem hefur ekki fastan tekjustofn.

Félagsmenn Framsýnar fengu góða styrki til starfsmenntunar á síðasta ári. Þessar upplýsingar komu fram á aðalfundi Framsýnar í vikunni.