Framsýn skipar aðgerðarhóp

Framsýn hefur skipað þriggja manna aðgerðarhóp. Hópnum er ætlað að undirbúa aðgerðir vegna hugsanlegra verkfalla komi til þess að samþykkt verði að hefja verkfallsaðgerðir á félagssvæði Framsýnar. Eins og kunnugt er voru kjarasamningar lausir um síðustu mánaðamót. Það er hjá félagsmönnum Framsýnar á almenna vinnumarkaðinum en ekki hjá ríki og sveitarfélögum.  Miðað við viðbrögð Samtaka atvinnulífsins við sanngjörnum kröfum Starfsgreinasambandsins, sem Framsýn á aðild að, stefnir í hörð átök á vinnumarkaði í apríl.
Stéttarfélög víða um land búa sig undir átök þar sem Samtök atvinnulífsins hafna alfarið kröfum stéttarfélaganna um sérstaka hækkun til þeirra lægst launuðu.