![vinnumal0914 004](http://www.framsyn.is/wp-content/uploads/2014/09/vinnumal0914-004-150x150.jpg)
Ályktun
Um lokun Vinnumálastofnunar á Húsavík
Framsýn, stéttarfélag krefst þess að Vinnumálastofnun dragi þegar í stað til baka boðaða lokun á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar á Húsavík frá og með 1. desember 2014. Þá vekur furðu að stofnunin skyldi ekki sjá ástæðu til að eiga samráð við stéttarfélögin og sveitarfélögin í Þingeyjarsýslum um málið áður en þessi vanhugsaða ákvörðun var tekin.
Greinagerð:
Vinnumálastofnun hefur í tilkynningu til Framsýnar ákveðið að leggja niður starfsemi Vinnumálastofnunar á Húsavík. Starfsmanni sem gegnt hefur 40% starfi á vegum stofnunarinnar á Húsavík hefur verið sagt upp störfum. Áður var um fullt stöðugildi að ræða.
Þjónusta Vinnumálastofnunar er gríðarlega mikilvæg í Þingeyjarsýslum. Stofnunin heldur utan um skráð atvinnuleysi á svæðinu og er ætlað að vinna að úrræðum fyrir atvinnuleitendur í samráði við þá. Jafnframt gegnir stofnunin mikilvægu hlutverki í atvinnumálum fatlaðra auk þess að þjónusta verðandi foreldra í gegnum fæðingarorlofssjóð.
Það vekur furðu og reyndar undrun að á sama tíma og stjórnvöld hreykja sér að flutningi Fiskistofu til Akureyrar með það að markmiði að fjölga opinberum störfum á landsbyggðinni skuli sömu stjórnvöld vinna markvisst að því að leggja niður opinber störf á öðrum stöðum á landsbyggðinni. Þetta er skrýtin stjórnsýsla svo ekki sé meira sagt og kallar á harða gagnrýni.![vinnumal0914 004](http://www.framsyn.is/wp-content/uploads/2014/09/vinnumal0914-004-1024x682.jpg)
![vinnumal0914 004](http://www.framsyn.is/wp-content/uploads/2014/09/vinnumal0914-004-1024x682.jpg)
Soffía Gísladóttir forstöðumaður VMST á Norðurlandi eystra átti fund með formanni Framsýnar í dag þar sem farið farið yfir ákvörðun stofnunarinnar að loka á Húsavík. Við það tækifæri kom formaður Framsýnar óánægju félagsins á framfæri við stofnunina.