Kristín Sveina Bjarnadóttir hótelstjóri á Hótel Gíg við Mývatn kom brosandi á móti fulltrúum Framsýnar og fræddi þá um starfsemina í sumar sem hefur gengið vel eins og hjá flestum öðrum ferðaþjónustu aðilum á félagssvæði Framsýnar. Hótelið hefur nánast verið fullt í allt sumar en það tekur um 75 manns í gistingu. Um 20 starfsmenn starfa hjá hótelinu sem flestir koma frá Akureyri.
Hléið er líka notað til að hafa samband við sína nánustu eða taka við pöntunum.