Búið að framlengja samning við Erni – frábær kjarabót

Framsýn og Flugfélagið Ernir hafa gengið frá framlengingu á samningi aðila um sérstök flugfargjöld fyrir félagsmenn Framsýnar. Í samkomulaginu er ákvæði um að félagsmenn Starfsmannafélags Húsavíkur, Verkalýðsfélags Þórshafnar og Þingiðnar geti einnig flogið á þessu frábæra fargjaldi. Samkvæmt samkomulaginu verður verðið óbreytt fram á haust eða kr. 7.500. Með haustinu hækkar síðan flugfargjaldið upp í kr. 9.200. Samningur aðila um  afsláttarkjörin gildir til 1. maí 2015 og verður þá vonandi endurnýjaður.

Samkomulag Framsýnar við Flugfélagið Erni tryggir félagsmönnum stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum áfram ódýr flugfargjöld á flugleiðinni Húsavík-Reykjavík. Flugfélagið hefur ákveðið að fjölga ferðum milli Húsavíkur og Reykjavíkur í sumar sem eru ánægjulegar fréttir.