Upplýsingar um nýgerðan kjarasamning

Hér má sjá helstu upplýsingar varðandi kjarasamning Samtaka atvinnulífsins og aðildarfélaga ASÍ sem var undirritaður 21. desember 2013. Samninginn má sjá hér: Kjarasamningur 21 des 2013 undirritaður

 Aðfarasamningur ASÍ og SA

Kjarasamningurinn sem aðildarsamtök Alþýðusambands Íslands undirrituðu í kvöld er svokallaður aðfarasamningur. Auk launabreytinga gefur samningurinn aðilum 12 mánuði til að undirbúa gerð langtímasamnings sem á að tryggja stöðugleika í íslensku efnahagslífi og kaupmáttaraukningu til framtíðar. Vinna við undirbúning slíks langtímasamnings hefst strax í byrjun nýs árs. Með samningnum er tekin upp sú nýbreytni að gengið er frá sérstakri viðræðuáætlun sem unnið verður eftir með tímasettum markmiðum um framvindu. Nýi kjarasamningurinn gildir frá 1. janúar til 31. desember 2014. 

Helstu atriði nýs kjarasamnings

Kaupliðir

Almenn launahækkun

Hinn 1. janúar 2014 skulu laun hækka um 2,8%, þó að lágmarki kr. 8.000 á mánuði fyrir dagvinnu miðað við fullt starf. Aðrir kjaratengdir liðir hækka um 2,8% á sama tíma.

Sérstök hækkun kauptaxta

Í stað áðurgildandi kauptaxta komi nýir sem eru hluti samninga viðkomandi aðildarsamtaka ASÍ. Launataxtar undir 230.000 kr. á mánuði hækka sérstaklega um 1.750 kr. Kauptaxtar gilda frá 1. janúar 2014.

Lágmarkstekjur fyrir fullt starf

Lágmarkstekjur fyrir fullt starf skv. kjarasamningum viðkomandi aðildarsamtaka ASÍ skulu vera kr. 214.000 frá 1. janúar 2014 fyrir starfsmenn 18 ára og eldri sem starfað hafa fjóra mánuði samfellt hjá sama fyrirtæki.

Desember- og orlofsuppbót

Desemberuppbót  miðað við fullt starf er á árinu 2014 kr. 53.600 (VR/LÍV 60.900).

Orlofsuppbót (1.maí til 30. apríl) miðað við fullt starf er á árinu 2014 kr. 29.500 (VR/LÍV 22.200).

Framlög til fræðslu- og starfsmenntasjóða hækka um 0,1%. 

Helstu ávinningar samningsins

Almenn launahækkun.

Aukið fjármagn og kraftur settur í starfsmenntamál.

Efri mörk í lægsta þrepi tekjuskatts hækka úr 256.000 kr. í 290.000 kr. Skatthlutfall í miðþrepi lækkar úr 25,8% í 25,3%.

Stærstu sveitarfélög landsins hafa tekið áskorun verkalýðshreyfingarinnar og hækka ekki gjaldskrár sínar um áramót.

Gjaldskrárhækkanir ríkisins verða ekki meiri en 2,5% á ári, ríkisstjórnin mun endurskoða breytingar á gjöldum sem þegar hafa verið samþykktar.

Unnið verði að því að við framkvæmd kjarasamninga verði miðað við umfang umsaminna launahækkana ásamt samningsbundnum starfsaldurshækkunum og starfsþróunar þannig að hún samrýmist verðbólgumarkmiðum Seðlabanka Íslands.

Ráðist verður í markvissar aðgerðir til stuðnings kaupmætti.

Samstilltar aðgerðir samningsaðila til að halda verðbólgu innan 2,5% markmiðs Seðlabanka Íslands. 

Kjarasamning aðildarsamtaka ASÍ og SA má lesa í heild sinni hér.

Yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við gerð kjarasamninganna má sjá hér.