Óviðeigandi ummæli framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu

Í fréttum Ríkissjónvarpsins í gær var viðtal við Andrés Magnússon framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu. Hann var spurður út í framleiðslu á kjúklingum á Íslandi. Meðal þess sem hann sagði var að gefa ætti innflutning á þessari vöru frjálsa þar sem hún byggði m.a. á innfluttu vinnuafli.

Formaður Framsýnar- stéttarfélags, Aðalsteinn Á. Baldursson,  undrast þessi ummæli sem byggi á alvarlegum fordómum í garð þessa fólks. Fyrirtæki á Íslandi hafi þurft að treysta á innflutt vinnuafl til að geta haldið úti starfsemi þar sem ekki hafi fengist vinnuafl á Íslandi. Hvað með fiskvinnsluna, byggingariðnaðinn, ferðaþjónustuna og kjötvinnsluna.  Á að leggja þessar atvinnugreinar niður þar sem þær byggja töluvert á innfluttu vinnuafli spyr formaður Framsýnar. Þá sé jafnframt athyglisvert að þessi ummæli komi úr þessari átt þar sem verslun og þjónusta hafi einnig þurft að treysta á innflutt vinnuafl. Formaður Framsýnar telur eðlilegt að framkvæmdastjóri  Samtaka verslunar og þjónustu biðjist opinberlega  afsökunar á þessum ummælum sem séu honum ekki sæmandi er varðar innflutt vinnuafl.