Eiríkur og félagar með góðan afla

Útgerðarfélag í Eistlandi, sem íslenskir aðilar tengjast, hefur keypt norska rækjutogarann Remöy Viking, að því er Hjálmar Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri Reyktal þjónustu ehf. umboðsaðila skipsins, sagði í samtali við Fiskifréttir. Skipið kom til Hafnarfjarðar í vikunni úr sinni fyrstu veiðiferð í eigu nýrra aðila og landaði um 250 tonnum af rækju.

Gert út frá Eistlandi

Nýja skipið, sem fengið hefur nafnið Reval Viking, var smíðað árið 2000 og er 2.350 brúttótonn að stærð, með 7.500 hestafla vél. Það er 61 metri að lengd. Kaupandi þess er eistneska félagið Reval Seafood og er skipið skráð í Eistlandi. Reval Seafood er í 50% eigu danska félagsins Ocean Prawns og 50% í eigu eistneska fyrirtækisins Reyktal AS, en Íslendingar tengjast því félagi.

Reyktal AS gerir út rækjutogarana Eldborg, Taurus og Ontika. Ocean Prawns í Danmörk gerir út Ocean Tiger og tvö skip í Kanada í samvinnu við kandadíska aðila: Ocean Prawns og Atlantic Enterprise.

Treg veiði

Reval Viking hóf veiðar 10. janúar við Austur-Grænland. Hjálmar sagði að mun minni veiði væri þar á veiðidag en undanfarin ár og því hefði fyrstu túrinn dregist á langinn. Um er að ræða stór og fallega rækju, hefðbundna Dohrnbankarækju, sem er unnin og soðin um borð. Skipstjóri á Reval Viking er Eiríkur Sigurðsson. Frekari fréttir má sjá í nýjustu Fiskifréttum. (Heimild og ljósmyndir, Þorgeir Baldursson)

Reval Viking landaði 250 tonnum af rækju í Hafnarfirði. Skipstjóri er Eiríkur Sigurðsson frá Húsavík.

 Eiríkur hefur lengi verið farsæl skipstjóri.