Upplýsingar um desemberuppbót 2012

Samkvæmt kjarasamningum ber atvinnurekendum  að greiða starfsmönnum sínum desemberuppbót í byrjun desember ár hvert. Uppbótin er háð ákveðnum skilyrðum sem varða t.a.m. starfstíma og starfshlutfall á yfirstandandi ári. Desemberuppbót greiðist sem eingreiðsla, er föst krónutala og tekur ekki hækkunum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga. Hér að neðan gefur að líta upphæðir desemberuppbótar fyrir árið 2012  eftir ákvæðum kjarasamninga. Ef frekari upplýsinga er þörf, endilega hafið þá samband við Skrifstofu stéttarfélaganna.

Desemberuppbót 2012 miðað við fullan rétt starfsmanna:

Almenni kjarasamningurinn milli Framsýnar/VÞ og Samtaka atvinnulífsins
Desemberuppbót                kr. 50.500,-

Kjarasamningur Framsýnar/VÞ við Bændasamtök Íslands
Desemberuppbót                kr. 50.500,-

Kjarasamningur Framsýnar/VÞ við Landsamband smábátaeigenda vegna vinnu við línu og net
Desemberuppbót                kr. 50.500,-

Kjarasamningur LÍV og SA sem Framsýn er aðili að
Desemberuppbót                kr. 57.300,-

Kjarasamningur Framsýnar/VÞ og Landsvirkjunar
Desemberuppbót                kr. 85.672,-

Kjarasamningur Framsýnar/VÞ og fjármálaráðherra fh. ríkisjóðs
Desemberuppbót                kr. 50.500,-

(Ath. Þar sem sérákvæði gilda fyrir starfsmenn á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga sem voru við störf 4. apríl 2004 geta þeir átt rétt á hærri desemberuppbót en hér greinir)

Kjarasamningur Framsýnar/VÞ og Launanefndar sveitarfélaga
Desemberuppbót                kr. 78.200,-

(Ath. Sérákvæði varðandi desemberuppbótina gilda um starfsmenn sveitarfélaga sem voru við störf  fyrir 29. maí 2005. Þeir eiga rétt á 50% desemberuppbót samkvæmt nánari skilgreiningu. Sama á við um starfsmenn Hvamms sem voru við störf fyrir 1. maí 2004. Þeir halda 50% desemberuppbót samkvæmt ákveðnum reglum.)

Kjarasamningur Samiðnar og SA sem Þingiðn er aðili að
Desemberuppbót                kr. 50.500,-

Kjarasamningur Samflotsins og Launanefndar sveitarfélaga sem STH er aðili að
Desemberuppbót                                kr. 78.200,-

(Ath. Sérákvæði varðandi desemberuppbótina gilda um starfsmenn Norðurþings sem voru við störf  fyrir 29. maí 2005. Þeir eiga rétt á 50% desemberuppbót samkvæmt nánari skilgreiningu.)

Kjarasamningur Samflotsins og fjármálaráðherra fh. ríkisjóðs sem STH er aðili að
Desemberuppbót                kr. 50.500,-

(Ath. Þar sem sérákvæði gilda fyrir starfsmenn á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga  geta þeir átt rétt á hærri desemberuppbót en hér greinir.)