Að semja um laun – Áhugavert námskeið

Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum bjóða félagsmönnum upp á áhugavert námskeið er nefnist AÐ SEMJA UM LAUN.  Leiðbeinandi á námskeiðinu verður Gylfi Dalmann Aðalsteinsson kennari við Háskóla Íslands. Um er að ræða 3 klst. námskeið. Námskeiðið verður haldið þriðjudaginn 30. október kl. 19:00 í fundarsal stéttarfélaganna. Námskeið er frítt fyrir félagsmenn stéttarfélaganna. Skráning á námskeiðið er á Skrifstofu stéttarfélaganna. Uppbygging námskeiðsins er eftirfarandi:

Farið verður yfir þá þætti sem skapa virði starfsmanna. Rætt verður um starfsþróun, atvinnuhæfni og starfsþróunaráætlanir. Þátttakendur leggja mat á eigið vinnuframlag, meta styrkleika og veikleika sína og koma auga á þau tækifæri sem eru til staðar. Þátttakendur rýna í  eigin menntun, þekkingu, færni, hæfni, reynslu, árangur og frammistöðu í starfi. Farið verður í undirbúning launaviðtalsins og kenndar mismunandi aðferðir í samningatækni sem t.d. nýtast í launa- eða ráðningarviðtali.

Það sem er tekið fyrir á námskeiðinu:

  • Atvinnuhæfni – starfsþróun
  • Að leggja raunhæft mat á sjálfan sig
  • Undirbúningur launaviðtalsins – greining gagna
  • Samningatækni

Ávinningur:

  • Þekkja styrkleika og veikleika
  • Geta gert starfsþróunaráætlanir og eflt atvinnuhæfni sína
  • Öðlast sjálfstraust í  launaviðtalinu
  • Aukið virði sitt sem starfsmenn og þar með árangur í launaviðtalinu
  •  

Kennsluaðferðir:

  • Verkefni
  • Fyrirlestur