Heimsókn frá formanni LÍV

Stefán Einar Stefánsson, formaður Landssambands íslenskra verslunarmanna, kom í heimsókn á skrifstofuna í vikunni á ferð sinni um landið.  Stefán er jafnframt formaður VR sem er stærsta aðildarfélag LÍV.  Átti formaðurinn gott spjall m.a. um starfsemi VIRK og kjaramál á víðum grunni auk þess sem nýafstaðinn vinnufundur um kjarasamninga bar á góma.  Ánægjulegt er þegar formenn landssambanda gefa sér tíma til að heimsækja smærri aðildarfélögin úti á landsbyggðinni og vonandi að framhald verði á því.

Stefán Einar Stefánsson formaður LÍV ásamt Orra Frey nýráðnum skrifstofu- og fjármálastjóra stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum.

Fyrrverandi og núverandi stjórnarmenn LÍV.  Ágúst Sigurður Óskarsson sat í stjórn LÍV á árum áður.  Hann starfar nú hjá VIRK starfsendurhæfingarsjóði.  Snæbjörn Sigurðarson fráfarandi skrifstofustjóri stéttarfélaganna situr í stjórn LÍV ásamt Stefáni Einari.