Frænku og frænda dagur á Grænuvöllum

Í  gær stóðu starfsmenn Leikskólans Grænuvalla á Húsavík fyrir skemmtilegu boði fyrir frændur og frænkur leikskólabarna. Boðið var upp á kaffi, djús og kökur. Hópur fólks gerði sér ferð í  leikskólann  og heilsaði upp á litlar frænkur og frændur. Sjá myndir.   Þórey og Harpa voru meðal þeirra sem heilsuðu upp á frænkur og frændur á leikskólanum í gær.

Formaður Framsýnar, Aðalsteinn Árni ,var á gestalistanum enda á hann öflugar frænkur á leikskólanum og reyndar nöfnu líka sem er í fanginu á honum en það er Elísabet Árný.

Ævar Þór heimsótti Höskuld frænda sinn sem var ánægður með að fá frænda í heimsókn.

Þær stóðu vaktina í góða veðrinu, Rósa og Gunnþórunn.

Meðan sum börnin tóku á móti gestum fóru önnur í göngutúr um bæinn enda veðrið með besta móti.