Um 157 milljónir greiddar í atvinnuleysisbætur til félagsmanna Framsýnar

Atvinnuástandið á félagssvæði Framsýnar hefur því miður verið bágborið en þó töluvert betra en á árinu 2009. Þá fengu félagsmenn greiddar kr. 176.741.379,- í atvinnuleysisbætur. En á síðasta ári voru greiðslurnar samtals kr. 157.801.508,- sem er lækkun um 19 milljónir milli ára sem er jákvætt. 

Upplýsingar um atvinnuleysi meðal félagsmanna í Framsýn 2009 og 2010  
             
Breytingar á milli ára: 2009 2010 Breyting breyting í %    
Fjöldi einstaklinga 351 290 -61 -17,38%    
Meðalfjöldi atvl.daga 74,23 80,22 5,99 8,06%    
Grunnbætur 143.724.896 128.323.121 -15.401.775 -10,72%    
Tekjutengdar bætur 14.085.040 12.575.666 -1.509.374 -10,72%    
Barnadagp. 5.174.096,26 4.619.632,35 -554.464 -10,72%    
V. Gjaldþrota 718.624 641.616 -77.009 -10,72%    
Mótframlag 13.038.723 11.641.474 -1.397.249 -10,72%    
Samtals: 176.741.379 157.801.508 -18.939.871 -10,72%    
Byggt á upplýsingum frá Vinnumálastofnun 30/3/2011      
                 

 Í vetur hafa að meðaltali verið um 170 manns án atvinnu á félagssvæðinu. Um helmingur þeirra hefur verið á Húsavík. Ekki er að sjá að breyting verði á til batnaðar þrátt fyrir endalaus loforð stjórnmálamanna um að allt sé að fara gerast á okkar svæði sbr. yfirlýsingu iðnaðarráðherra nýverið. 

Hins vegar megum við aldrei gefast upp þar sem Þingeyjarsýslur eru fullar af tækifærum í ýmsum greinum sem við eigum að nýta okkur. Ef það á hins vegar að vera hægt að nýta tækifærin verða stjórnvöld á hverjum tíma að vinna með heimamönnum í stað þess að setja endalaust stein í götu þeirra.  Það var t.d. ömurleg atlagan sem gerð var að Heilbrigðisstofnun Þingeyinga í vetur. Svo ekki sé talað um breytingar sem boðaðar hafa verið hjá Íslandspósti og Sparisjóði Þórshafnar og nágrennis á Raufarhöfn.  Þá hafa verið boðaðar breytingar á rekstri Framhaldsskólans á Húsavík og hjá Sýslumannsembættinu.  Þá ályktuðu lögreglumenn í Þingeyjarsýslum um niðurskurð á framlögum til löggæslu á svæðinu sem þegar hefur verið skorin verulega niður. Allar þessar aðgerðir þýða samdrátt og uppsagnir á fólki, því miður.