Ljóst er að Virk- Starfsendurhæfingarsjóður er að gera góða hluti á félagssvæði stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum. Starfsmaður Virk er Ágúst S. Óskarsson sem starfar í nánu samstarfi við höfuðstöðvar sjóðsins sem eru í Reykjavík. Sjá frekar upplýsingar um starfsemina hér.
Þjónusta Virk:
Virk – starfsendurhæfingarsjóður var stofnaður af aðilum vinnumarkaðarins árið 2008. Hlutverk hans er að draga markvisst úr líkum á því að launafólk hverfi af vinnumarkaði vegna heilsubrests eða varanlegrar örorku, með aukinni virkni, eflingu endurhæfingar, markvissum stuðningi og öðrum úrræðum.
Með samvinnu Framsýnar stéttarfélags, Starfsmannafélags Húsavíkur, Þingiðnar og Verkalýðsfélags Þórshafnar (og annarra stéttarfélaga) og Virk – starfsendurhæfingarsjóðs, var ákveðið að ráðgjafi á sviði starfsendurhæfingar starfaði í Þingeyjarsýslum, með aðsetur á skrifstofu Framsýnar á Húsavík.
Þjónusta við einstaklinga:
Ef starfshæfni er skert eða henni er ógnað vegna heilsubrests býður Virk – starfsendurhæfingarsjóður persónulega þjónustu og stuðning. Þjónusta er veitt til einstaklinga á vinnumarkaði sem hafa verið fjarverandi vegna veikinda, atvinnulausra, öryrkja og annarra sem stefna á þátttöku á vinnumarkaði. Ekkert gjald er fyrir þjónustu Virk – starfsendurhæfingarsjóðs.
Öll samvinna við einstaklinga um starfsendurhæfingu er unnin á grundvelli faglegra greininga og ráðgjafar lækna eða annarra þar til bærra fagmanna. Áhersla er lögð á meiri virkni, auka vinnugetu og varðveita ráðningarsamband eða leit að samstarfsaðila til að koma því á. Unnið er út frá hæfni og styrkleikum hvers einstaklings samhliða því að yfirvinna þær ögranir sem eru á vinnugetu og/eða starfsaðstæðum.
Þjónustan við einstaklinga fellst í:
- Persónulegri ráðgjöf og hvatningu sem tekur mið af aðstæðum hvers og eins.
- Samvinnu um gerð og eftirfylgni einstaklingsbundinnar áætlunar um eflingu starfshæfni eða endurkomu á vinnumarkað.
- Vali á hentugustu úrræðum til að bæta heilsu og styrkja starfshæfni (t.d. meðferð lækna, annarra heilbrigðisstétta, sjúkraþjálfara, náms- og starfsráðgjafa, endurmenntunar, mats á starfsaðstæðum og annarra endurhæfingaraðila).
- Leiðbeiningar um réttindi, greiðslur, framfærslu og þjónustu á svæðinu.
Þjónustu við atvinnulífið:
Öll samtök launagreiðenda (Samtök atvinnulífsins, Ríkið og Samband sveitarfélaga) eru aðilar að Virk – starfsendurhæfingarsjóði og leggur sjóðurinn áherslu á að eiga gott samstarf við atvinnurekendur og alla þá sem koma að velferð starfsmanna. Gott samstarf miðar m.a. að því að auka starfshæfni starfsmanna á vinnumarkaði og styrkja á þann hátt þátttöku í atvinnulífinu og samfélaginu.
Þjónusta við atvinnurekendur fellst í:
- Upplýsingagjöf og ráðgjöf vegna starfsmanna sem eru í skammtíma- eða langtíma fjarveru vegna veikinda eða eru með skerta vinnugetu.
- Kynningum á markmiðum, þjónustu og starfsemi Virk – starfsendurhæfingarsjóðs.
- Önnur samvinna og ráðgjöf sem miðar að því að styrkja starfshæfni starfsmanna, bæta starfsaðstæður og lágmarka fjarvistir vegna veikinda starfsmanna (fjarvistarstjórnun).
Ágúst Sigurður Óskarsson starfar sem ráðgjafi Virk – starfsendurhæfingarsjóðs í Þingeyjarsýslum. Allar nánari upplýsingar um þjónustuna má nálgast hjá Virk – Starfsendurhæfingarsjóði, Garðarsbraut 26 (félagsaðstöðu Framsýnar), 640 Húsavík, sími 464-6608, netfang virk@framsyn.is.